Vitsmunir og dómgreindarbrestur

Á miðlinum Russia Today, sem mun vera haldið úti af rússneskum stjórnvöldum, er grein undir yfirskriftinni:

,,Zelensky, 2022, Stalin 1942: the US propaganda machine can easily make heroes, but it can quickly change the script".

Sem á okkar máli gæti verið:

,,Zelensky, 2022, Stalín 1942: áróðursvél Bandaríkjanna býr til hetjur með auðveldum hætti, en getur breytt uppskriftinni snögglega".

Rétt er að geta þess að greinin er nokkuð löng, en samt vel þess virði að lesa, hafi maður áhuga á að kynna sér sjónarmið rússneskra stjórnvalda, eða a.m.k. þess sem skrifar greinina, þ.e: Tony Cox bandarísks blaðamanns sem unnið hefur hjá ýmsum miðlum eftir því sem þar segir.

(Á Linkedin kemur fram að hann starfar fyrir RT. Myndir sem hér fylgja eru úr grein Tony Cox.)

2022-07-16 (3)Grein sína byrjar Tony á að minna á, að kærleikar Bandaríkjanna við forseta Úkraínu og hersveita þess ríkis, minni á upphafningu Jósefs Stalíns á sínum tíma og að upphafning Zelensky minni á hvernig bandaríska stjórnmálastéttin og vestrænir fjölmiðlar, hafi upphafið Georgíumanninn forðum tíð.

Forseti Úkraínu og hans lið sé dregið upp sem lið frelsisins og baráttunnar fyrir því og sem ,,hetjulegir vinir sem styðja þurfi".

Um sé að ræða frelsisbaráttumenn sem séu að bjarga lýðræðinu frá árásum illra afla og það þó svo að þeir sem með mál fara í Kænugarði geri hvort tveggja, að banna stjórnarandstöðuflokka og þaggi niður í fjölmiðlum og öðrum þeim sem líklegir séu til gagnrýni.

Newsweek og AP lýsi Zelensky sem hetju sem leggja megi að líku við Churchill með þeirri undantekningu að CNN sé ekki alveg á þeim nótum, enda vandséð hvar finnast muni maður sem jafnast geti á við Churchill heitinn.

Churchill var ekki metinn að verðleikum að styrjöldinni lokinni. En ef til vill verður Zelensky hafinn til vegs og virðingar þegar tímar líða, fyrir það að hafa bannað gagnrýni og að hafa látið handtaka pólitískra andstæðinga.

Eftir því sem fram kemur í grein þeirri sem nefnd var til sögunnar hér í upphafi, var Churchill bæði heimsvaldasinnaður, en líka lýðræðissinnaður maður og þar með nokkuð ólíkur manninum sem fram kemur nú sem forseti Úkraínu.

Tony minnir okkur á sem gleymt höfum, að Churchill tapaði kosningum og missti embættið eftir að hafa unnið sinn stóra sigur á stríðstímunum!

Churchill og Roosevelt fegruðu Stalín, en hann var ekki talin til fyrirmyndar áður en nasistaher Þjóðverja undir forystu Hitlers réðst inn í Sovétríkin.

Tony Cox kemst að þeirri niðurstöðu að í raun hafi ekki verið meiri munur á Hitler og Stalín en sá sem fólst í stærð yfirskeggja þeirra!

Margir Bandaríkjamenn munu hafa haft áhyggjur ,,af því að berjast við einn fjöldamorðingja (Hitler) með hjálp annars (Stalíns)" og mun sagnfræðingurinn Albert Marrin hafa komist að þeirri rökréttu niðustöðu að ,,þeir hafi báðir tveir verið sömu kaldrifjuðu skrímslin" og ætli flestir geti ekki nú orðið tekið undir það?

Í greininni er rifjað upp að Bandamenn töldu nauðsynlegt að hafa Rússa með í styrjöldinni til að nasistaherinn væri upptekinn við glímuna við þá og það lið sem þar væri teppt berðist ekki í vestri á meðan og minnt er á, að mannfall Þjóðverja í Sovétríkjunum var gríðarlegt.

Rétt eins og nú á tímum skiptu fjölmiðlar miklu máli varðandi það að draga upp ,,rétta" (en samt ranga!) mynd af samherjanum og Stalín var sýndur sem ,,Jói frændi", sagður traustur bandamaður og hugrakkur og birtust af honum myndir á forsíðum blaða og þ.á.m. þrisvar á tímaritinu ,,Time" sem gekk svo langt að útnefna Stalín ,,mann ársins" í janúar 1943.

2022-07-16 (4)Dregin var upp sú mynd af rússneska hermanninum að hann væri vinur góður og reyndar er ekki nein ástæða til að afgreiða þátttöku hins almenna Sovétborgara öðru vísi en svo hafi verið.

Í nútíma eru bardagamenn Úkraínu hafnir til lofs og virðingar í umræðunni, þrátt fyrir nasísk tengsl og kannski ekki síst ef sveitir þeirra hörfa, því þá gera þær það að eigin vali, eða af því að þær kusu að færa sig til!

Horft er framhjá nasískum uppruna þegar rekist er á hann og allt er nú harla gott, líkt og var um Stalín karlinn, þegar hann var hinn besti kórdrengur forðum daga.

Kaupin á eyrinni í heimspólitíkinni gerast svona allavega og stundum verður að taka einn fram yfir annan og skipta honum síðan út, þegar taflstaðan er komin í betra lag.

Fjölmiðlást á Úkraínu er slík að allt er talið vera gott í landinu og undir góðu ,,kontróli", líkt og var þegar þótti henta 2022-07-17 (4)að halda því sama fram um Sovétið, en svo eru líka til þau sem telja sig sjá og skilja það sem ekki er sagt líkt og jafnan áður:

 

Úkraína sem bæði var fátæk og spillt er nú hafin til vegs og virðingar og Zelenski sem uppistandari víða um heim í treyjunni sinni grænu, heilsandi fyrirmönnum annarra landa, ýmist í gegnum miðla, eða í eigin persónu.

 

 

Zelensky heilsar Macron sem verið sé í 

2022-07-16 (5)sjómann - vantar bara borðið - en svipurinn á Macron er þannig, að ef til vill er best að reyna ekki að ráða í hann; glottið lymskulegt og augnaráðið eftir því!

Allt tal um einhvern óþverra, svo sem lífrannsóknarstofur af vafasömu tagi er hundsað, gleymt, grafið og órætt.

Hvar múgsefjunin byrjaði nákvæmlega er erfitt að segja til um og hvar hún endar er einnig útilokað að segja nokkuð um á þessari stundu.

2022-07-17 (5)En það er líf og það er fjör, en á þeim sem eldurinn brennur heitast á þá stundina í hita hins harða leiks er ekki eins gaman. Þar ríkir skelfingin ein og hörmungarnar. eins og alltaf þegar mennskan er yfirgefin.

Hvernig þetta endar er ekki gott að segja, en svo mikið er víst að þegar heimstyrjöldinni lauk, þá var ekki lengur þörf fyrir Stalín karlinn og hann var settur blessunarlega út í kuldann, enda ekkert að hafa af honum nema kulda og þeir og þau sjálfsagt ekki mörg, sem hefðu viljað hafa hann inn á gafli hjá sér!

Svona geta kaupin gerst á hinni heimspólitísku eyri, að þeir síðustu geta orðið fyrstir og að lokum síðastir þegar tjaldið fellur!

Hvernig málum Úkraínu lýkur vitum við ekki. Og þó sagt sé að tíminn muni leiða það í ljós, þá veit ,,tíminn" ekkert í sinn haus, enda hefur hann engan haus, er bara mælieining sem torvelt er að skilja og alls ekki öruggt að hann sé í raun og veru til!

Er bæði afstæður og teygjanlegur svo sem sýnt hefur verið fram á.

Við vitum það eitt að við erum hér núna, eitthvað um það sem kemur innan tíðar og lítið meira en það.

Hugleiðingarnar sem hér eru settar fram eru lauslega byggðar á greininni sem í upphafi var vitnað til og myndum var hnuplað þaðan.


Jón og séra Jón - enn og aftur

2022-07-02 (4)Til stendur að senda til baka fólk sem hingað hefur flúið úr hörmulegum aðstæðum.

Fólk sem lagði á flótta frá sínu heimalandi vegna stríðsátaka.

Það er nokkuð sem við þekkjum orðið vel og í heimsstyrjöldinni annarri, sem svo er kölluð, var fólki sem hingað sótti og var á flótta snúið til baka - stundum en ekki alltaf, sem betur fer.

Nú á að fara að endurtaka þetta, gagnvart sumum en ekki öðrum, líkt og þá var gert.

Hvernig er þetta í hinu góða Íslandi, þar sem tekið er opnum örmum við stríðshrjáðu fólki, mæðrum, börnum og gæludýrum þess?

Fólki sem kemur úr yfirfullum flóttamannabúðum.

Er ekki sama hvernig það er á litinn?

Hvað er það sem ræður og eftir hverju er flokkað?

Erum við svona rasísk og er það hin raunverulega ástæða sem ræður för?

Skýtur ekki skökku við að senda til baka fólk sem hér er sest að og er jafnvel komið með börn í skóla, á meðan tekið er vel á móti öðrum sem eru líka að flýja stríðsátök?

Bera því við að þau sem brottræk eru, séu komin með landvistarleyfi til að dvelja á götunni í Grikklandi og segja sem svo:

Þarna máttu dvelja með börnin þín og ef vel tekst til, geta þau betlað fyrir mat, í sig og ef heppnin er með eitthvað handa mömmu sinni og kannski er litla systir orðin nógu stór til að selja....sig ókunnum körlum fyrir smá aur.

Og verður eftir það ötuð ,,auri".

Erum við við svona?

Og viljum við vera svona í boði rikisstjórnar Íslands, landsins sem við vorum svo heppin að fæðast í?

Landsins sem þessa dagana glímir við þann vanda helstan að greiða dómurum of há laun og hækka önnur laun og svo framvegis.

Að því ógleymdu að gera sig gildandi á erlendum vettvangi, með glennum og alls konar sprikli og lætur sér jafnvel detta í hug að koma sér upp her.

En kannski var það nú bara blaður í einum svokölluðum ,,álitsgjafa", sem enginn gefur neitt fyrir!

Byggt á frétt á visir.is og myndin er þaðan.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband