Gott ,,plan"?

Allt á að verða til af engu og verða síðan að engu.

2023-06-30 (3)Þjóðin sem áður lifði af því sem hafið og landið gaf og gerir að stórum hluta enn, stefnir að því að lifa á ,,einhverju öðru".

Jón á að toga í Tvíbjörn og Tvíbjörn síðan í Þríbjörn... o.s.frv. Stefnan í orkumálunum er:

Að fljóta sofandi að feigðarósi og ósinn sá er í þessu tilfelli orkuskortur.

Lýsa á upp, hita hús og skaffa atvinnutækjum orku og fleira, með engu.

Þá á að fjölga þjóðinni sem unnt er og ef það er ekki hægt með fjölgun þeirra sem fyrir eru, skal flytja inn nýja íbúa, sem gæti vel verið gott ef hugsjónin næði þangað, að gera ráð fyrir að blessað fólkið hefði eitthvað að gera til lengri tíma litið.

2023-06-30 (5)Stefnan virðist vera, meðvitað eða ómeðvitað, að gera atvinnurekstri eins erfitt fyrir og mögulegt er, eins og margnefnt bann á hvalveiðum er skýrt dæmi um.

Allir eiga að hafa vinnu, en það á að gerast af sjálfu sér og eftir því sem virðist, helst án þess að snert sé á neinu.

Spurning er hvort ekki þurfi að stofna sérstakan stjórnmálaflokk, með það sem aðalmarkmið, að koma þessari framúrstefnulegu hugmyndafræði í framkvæmd?

Nei, þess þarf ekki, því flokkurinn er til og fer með forystu í ríkisstjórninni og hinir stjórnarflokkarnir dingla með. Líklega í þeirri von, að mun lengra sé í kosningar en almanakið segir, eða að vonin sé, að ævintýrið úr Borgarnesi endurtaki sig, þannig að talning atkvæða að loknum kosningum fari fram með þeim hætti sem henta þykir og niðurstaðan verði sú sem menn vilja.

2023-06-30 (7)Undirstöður þjóðarinnar eru nokkrar og fyrstan og fremstan má telja sjávarútveginn og þar með taldar hvalveiðar. Þá koma hinar greinarnar s.s. iðnaður, landbúnaður, verslun og þjónusta og þar með talin ferðamannaþjónusta og er þá að sjálfsögðu alls ekki allt upp talið.

Á atvinnuvegunum stendur allt sem við viljum og þörfnumst og þá viljum við fyrir engan mun missa.

Hvað vinstrigræningjar allra flokka athugi!

Því er það hart á að horfa, að svo er sem sambandið sé rofið og svo sé komið, að a.m.k. einn stjórnmálaflokkur sé á sviðinu sem metur það svo, að hægt sé að komast af án undirstöðunnar.

Vel kann að vera að hægt sé að lifa án þeirra undurstöðugreina, en hætt er við að það verði frekar þunnur magáll að naga til lengdar.

Undirritaður hefur ekki þá þekkingu sem þarf til að skilja hvernig hringrás peninganna getur haldið uppi góðu og vaxandi þjóðfélagi án þess að undirstaðan sé trygg.

Hringrásin auranna er reyndar þeim annmörkum háð, að drjúgur hluti þeirra á það til að leka niður í vel valdar holur þar sem kúra vel valdir menn, á leið sinni og setjast þar að, en það mun vera náttúrulegt eðli hins ,,frjálsa framtaks" og þykir því gott.

Sá sem er verður launa sinna samkvæmt orðtakinu, ,,að verður sé verkamaðurinn launa sinna", heldur sig sjaldnast í hinum notalegu holum, klúðrar ekki rekstri fyrirtækja og þarf sjaldnast að ,,segja af sér", ,,stíga til hliðar", eða eitthvað í þá veru.

Hann tekur einfaldlega við sínu launaumslagi - sem nú til dags mun vera orðið ,,rafrænt" a.m.k. sumstaðar - og heldur áfram að skila sínu meðan það býðst.

Það boð styttist síðan vegna gjörða þeirra sem komist hafa í valdastöður, hafa gleypt sólina og að því loknu orðið svo firrtir, að þeir banna atvinnurekstur daginn áður en hann byrjar, einfaldlega vegna þess að þeim finnst að þannig eigi að standa að málunum.

Vont er þeirra ranglæti en verra er þeirra réttlæti, var einu sinni sagt og er í fullu gildi enn. 

 


UFO- arnir eru komnir!

Allt er þetta svo pottþétt að það hálfa væri nóg!

Skjámynd 2023-06-29 103446Myndir fylgja til sönnunar málsins, en ekki þó af líkamsleifum blessaðra geimveranna sem glötuðu lífi sínu í Jarðarheimsókninni.

Okkur hefur lengi grunað að forsetinn gæti verið af öðrum heimi og sama má segja um þann sem langar til að bjóða sig fram gegn honum.

Mennirnir eru á besta aldri eins og við vitum flest, ekki nema u.þ.b. áttatíu ára gamlir og sprækir eftir því.

Annar er svo fjölþreifinn til kvenna að það eitt og sér ætti að sanna að hann er búinn til úr einhverju öðru efni en venjulegir vesælir Jarðarkarlar.

Skjámynd 2023-06-29 103515Kínverski loftbelgurinn reyndist vera einhverskonar ómark sem var uppfullt að bandarísku dóti sem reyndist vera frat og því telst hann ekki með, en það sem rak upp á japanska strönd var eitthvað dularfullt og það svo, að ekki hefur verið meira um það rætt.

Kannski er verið að ræða við verurnar og jafnvel leita að túlki til að miðla samtalinu milli aðila, en ekki er gott að segja hvar tungumálagarpur af því tagi mun finnast!

Hér til vinstri er eitt hinna dularfullu flygilda sem bandarískir meistarar hafa verið að skoða, spá og spekúlera í.

Mulder og Skully eru örugglega komin á sviðið, sem er gott, því engin eru líklegri til að finna lausn á þessu dularfulla máli.

Skjámynd 2023-06-29 103538Tom Swift er víst ekki til lengur, frekar en Tarzan, en höfundur hans hafði reyndar hugmyndaflug til að skrifa um prinsessu frá Mars, en öllum til leiðinda, hefur geimvísindamönnum ekki tekist að finna þá geimskapnaði sem þar koma við sögu heldur.

Þetta gengur sem sagt dálítið brösótt, en er samt staðreynd, hvað sem hver segir, það sem frá ,,vestrinu" kemur er eins og við vitum ekki nema gott, vitrænt og fræðandi.

Íslenskur hversdagsleiki verður sem hjóm eitt, þegar ævintýrið ,,Innrásin frá Mars" er rétt við það að raungerast vestan Atlantsála.

Við vitum, að allt fer þetta vel og verður bæði fræðandi og skemmtilegt. Við vitum að til eru þeir sem vita hvernig UFO- arnir líta út, en verst er þó að þeir skuli vera dauðir.

Svo skáldlegt sem þetta er, þá gerum við ráð fyrir að þeir verði vaktir upp, en hvort þeir dansa úti í íslenskri náttúru að kvöldi til vitum við ekki, en vitum þó að það verður gaman að sjá.

 


Mikið að gera en fáir viðlátnir

Það er greinilega ekki tekið út með sældinni að vera ráðherra í sæluríkinu, nóg er samt framboðið af fólki til starfans og fá færri en vilja, embættin eftirsóttu.

Samsett myndÞað hefur lengi loðað við mannskepnuna að hafa áhuga og vilja til, að ráða yfir og stjórna öðrum, nema sjálfum sér náttúrulega.

Það þykir t.d. fínt og eftirsóknarvert að stjórna bönkum og fá það færri en vilja, en eins og í svo mörgu, fylgir oft böggull skammrifi, því ekki er alltaf hægt að snúa sér undan, þegja af sér skömmina og vonast til að allt gangi þetta yfir, líði hjá og hverfi. 

Sýslumaður - sem reyndar er kona en konur eru líka menn eins og við ættum að muna -, rigsaði þegjandi á brott þegar honum var nóg boðið. 

Sá var nýbúinn að selja ofan af fólki sem lítið hafði fyrir og eignin sem verið hafði, hvarf til útgerðarmanns (kvótagreifa?) fyrir brotabrot af raunvirði.

Eins og gefur að skilja, spjalla menn ekki um hvað sem er og hvar sem er og því var það, að sýsla ákvað að bregða sér í göngutúr í trausti þess að hinn snúrutengdi fréttamaður brygði sér ekki lengra en snúrurnar næðu.

Við birtum ekki mynd af svona dapurlegum atburðum, en áhugasamir geta fundið efnið á vef Rúvsins og kannski víðar.

Lausaganga sauðfjár er til ,,greiningar" og ,,skoðunar" í Morgunblaðinu og tilefnið er að svo bregður við eftir langdregið framsóknarástand í sauðfjárhaldi, að innleitt hefur verið, að nú skuli hver gæta síns fjár í stað þess að fela það öðrum, svo sem verið hefur um óralangan tíma. 

Þessi nýjung virðist vefjast fyrir fjárhöldurum þessum, en vonandi venst það með tímanum eins og annað, en vissulega er mun þægilegra að aðrir sjái um hluti sem þessa, en þeir sem eiga.

Við leggjum fé inn í banka til að fela það öðrum til gæslu og því ekki hið jarmandi fé líka?

Annars er það eins og við sjáum, ekki alveg víst að allt sé eins og það á að vera varðandi fjárgæslu bankanna.

Þeir geta verið dálítið sauðslegir á köflum og ekki alveg á að treysta svo sem margsagt hefur verið frá í fréttum síðustu daga.

Við vonum að Eyjólfar og Eyjlínur líka, hressist og eflist í gæslustarfi sínu og forðist að verða að verða af aurum apar.

Það er alveg óþarfi að vera að standa í slíkum umbreytingum, nóg er nú samt og nóg er vissulega til af öpum og af alls konar tagi.

 

 

 

 


Kvalræði (hvalræði) eða sæluríkið góða?

Ákvarðanataka í stjórnsýslu þarf að vera vel grunduð og byggjast á traustum rökum, sterkum grunni og vera vel yfirveguð.

Skjámynd 2023-06-26 053736Fyrir nokkrum dögum urðum við vitni að því að ráðherra tók ákvörðun um að svipta hóp fólks vinnu sinni og stöðva rekstur fyrirtækis, sem starfar í sjávarútvegi og stundar veiðar á hvölum yfir sumartímann.

Veiðarnar hafa gengið nokkuð vel, það er að segja þegar skipunum er ekki sökkt þar sem þau liggja bundin við bryggju og þegar reksturinn er ekki stöðvaður af til þess gerðri pappírspésu, sem fengið hefur til þess hvatningu frá skoðanasystkinum þeirra, sem sökktu skipunum á sínum tíma.

Ástæðan fyrir stöðvuninni mun vera sú, að mistök voru gerð við aflífun dýrs á síðustu vertíð og sé tekið mið af afgreiðslu þessa máls geta margir lent í vandræðum í framhaldinu og jafnvel getur farið svo, að í stað þess að fólk flytji til landsins, verði straumurinn í hina áttina.

Gera má ráð fyrir að aflífun dýra í sláturhúsum fari sómasamlega fram og séu hinum sómakæra ráðherra þóknanleg, þó er það ekki alveg víst, því jafnvel þar geta orðið mistök, en gera má ráð fyrir að það sé síður en þegar dýr eru veidd.

Sjálfsagt þykir að narra laxa til að bíta á öngul og skemmta sér síðan við að ,,þreyta" í langan tíma og þegar hann næst að lokum, örmagna á land er honum sleppt í þeirri von að hægt verði að endurtaka leikinn síðar.

Hreindýr eru veidd á fjöllum, skotin á færi og ekki er víst að dýrinu sé alltaf banað í fyrsta skoti og hvort sama gildir um fuglaveiðar er líklegt.

En veiðar eru líka stundaðar á hafi úti af fiskveiðiþjóðinni.

Hvernig ætli það sé með veiðar í botnvörpu, sem dregin er eftir botni sjávar og fiski safnað saman í, þar til að lokum að varpan er dregin upp í skutrennu, fiskurinn allur samansafnaður í poka, þar sem hann að lokum kafnar úr súrefnisskorti.

Hefur ráðherrann kynnt sér hvernig honum líður við þessar aðstæður og hve lengi hann er að deyja drottni sínum? 

Eru fiskar kannski eins og grjótið að þeir hafi enga tilfinningu, hefur hinn virðulegi ráðherra kannað það mál? Prófað að vera fiskur í neti, á krók eða í botnvörpu eða flotvörpu.

Það virðist sem þrengst geti að atvinnuvegum þjóðarinnar, nema að allir geti snúið sér að blíantanagi, reglugerðasmíð og lagakróka og ekki má nú gleyma nefndarstörfunum o.s.frv.

Útflutningsverðmæti þjóðarinnar eru frá sjávarútvegi, iðnaði og fleiru.

Hætt er við að þrengjast muni að, ef fiskveiðum verður hætt, iðnaði líka o.s.frv.

Það liggur fyrir að ekki má framleiða meiri raforku í landinu og nú er svo að sjá sem sjávarútvegurinn sé einnig að sigla í stopp og án raforku er iðnaðurinn á sömu leið. 

Vafalaust verður látið á það reyna hvort hægt sé að fleyta þjóðfélaginu á reglugerða, laga og skýrslugerðaskrifum, auk þjónustu af ýmsu tagi, en augljóst er hvert það mun leiða þegar yfir lýkur.  

Það liggur fyrir, að átta stofnanir þurfa að koma að því að urða eitt hvalshræ sem rekið hefur á land og er gott að formæður og feður okkar vissu ekki af þeim ósköpum öllum þegar þau nýttu sér hvalreka áður fyrr, en atvinnuskapandi er kerfið

Þá var ekki búið að finna upp Umhverfisstofnun, heilbrigðiseftirlit, Hafrannsóknarstofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Matvælastofnun (yfirdýralæknisembættið), náttúrustofu viðkomandi sveitarfélags til að ganga frá hvalshræinu og þaðan af síður Vinstri græna, sem eru svo grænir að þeir sjást ekki fyrir í gjörðum sínum.

Og ekki má gleyma því að flokkarnir tveir sem teyma þá áfram bera líka sína ábyrgð, nema svo sé komið að enginn beri ábyrgð á neinu, sé hann á annað borð kominn að hinum opinberu kjötkötlum.

 

 


Israel, Rússland, Ísland og Prígó

Hernám Ísraelsmanna á Austurbakkanum virðist engan enda ætla að taka og er Skjámynd 2023-06-24 111705svo að sjá að um sé að ræða mál sem heimsbyggðin er ýmist búin að gleyma, eða vill að minnsta kosti sem minnst af vita.

Um það er þó fjallað í Morgunblaði dagsins (24/6/2023) og ísraelskur blaðamaður er væntanlegur til landsins til að vekja okkur og fræða um stöðuna.

Hann mun ætla að fjalla um átökin, afleiðingar þeirra og þá fjarstæðu sem hann telur vera, að Ísraelsríki teljist til lýðræðisríkja.

Í blaðinu er líka sagt frá því að fyrrverandi ráðherra hyggist fara í framboð og endurnýja kynni sín af Alþingi og vafalaust hefur hann margt gott til málanna að leggja á þeim vettvangi, beri framboð hans þann árangur að hann nái inn á þing.

Í Rússlandi virðist sem allt sé að fara úr böndunum og sannast þar hið fornkveðna: Að illt er að ala sér nöðru við brjóst.

 

Prígókin mun hann heita sá ,,góði" maður sem hefur fundið fjöruna sína í því ,,starfi", að berjast með herdeild sinni fyrir hvern þann sem greiða vill fyrir verkið; er ,,vinur" í dag en hvað hann er á morgun veit enginn.

Málaliðar eru ekki óþekkt fyrirbæri í sögunni og bloggari minnist þess að oft var talað um málaliðaher í Alsírstríðinu þegar Frakkar háðu þunga glímu á þeim slóðum og fleiri dæmi mætti til taka.

Þeir eru ábyggilega víðar á ferð, en einkennilegt er að velja sér starfa af þessu tagi. Flestum finnst víst nóg að þurfa að vera kallaðir í her til að standa vörð um eða verja föðurland sitt, en hér er eitthvað annað á ferð og augljóslega valt á slíkan fénað að treysta.

Putin hefur valið sér þennan gaur til verka og nú er svo að sjá að her Rússlands þurfi bæði að sigra hinn úkraínska NATO rekna her Selenskís og að auki málaliðana hans Prígó og þurfi líklegast að snúa sér að þeim fyrst!

Það nýjasta í málinu er að Prígó þessi virðist hafa fengið hæli í Hvíta Rússlandi og hermenn hans munu vera í þann veginn að ganga í rússneska herinn!

Hvað verður að þessu pári loknu, er ekki gott að spá fyrir um.

Útboðum Landsvirkjunar varðandi byggingu Hvammsvirkjunar er búið að fresta sem vonlegt er, því komið er í ljós að til reyndist vera stofnun í samfélagi okkar sem mönnum hafði sést yfir að til væri. Enga virkjun hér, nú, eða þá, kom upp úr rykfullum skúffum þess fyrirbrigðis og skiptir þá engu hvort íslensk þjóð þarfnast meira rafmagns eður ei.

Þeir sem hafa völdin búa í skúffum og þeir kváðu upp sinn dóm!

Við eigum sem sagt okkar Prígó eða Prígóa, þó öðruvísi séu en austur í Rússíá.

Sitjum því uppi með bann við hvalveiðum, bann við virkjunum og bönn (já í fleirtölu!) við urðun hvalshræja sem rekið hafa í fjörur.

Bann við öllu sem ekki er sérstaklega leyft og bönn við því líka eins og dæmin sanna, s.s. sem varðandi hvalveiðar og Hvammsvirkjun.

Hundarnir elta skottið sitt í galsa og kæti, við eltumst við nefndafargan í fullkominni ókæti! 

 


Kommúnismi, reiðarslag og fleira gott

Þruma, kurr og öfgafullur kommúnismi, reiðarslag og gerræði og er þá ekki allt upp talið, því það vantar orku og komið er nóg af skattlagningu á ferðaþjónustuna.

Skjámynd 2023-06-22 080847Að kommúnismi hafi og eigi eitthvað sameiginlegt með ,,stefnu” Vinstri grænna er reyndar spurning, því þankagangur og hugmyndafræði þess stjórnmálafyrirbrigðis er svo sérkennileg að hæpið er að kenna það við venjulega vitræna hugsun og engan vegin við tilraun til að búa til hugmyndafræði sem rekja má aftur til þess sem var um miðja nítjándu öld.

Við erum á frekar skrýtnum stað í íslenskri pólitík, stað þar sem venjuleg viðmið eiga ekki við og þar sem flokkur sem við teljum vera lengst til hægri af því sem í boði er í flokkaflórunni Sjálfstæðisflokkurinn, er nálægt því í mörgum málum að vera það kalla má flokk heilbrigðrar skynsemi.

Ekki lengst til hægri, nema stundum og af mönnum sem augljóslega telja sig vera yst á hægri kantinum, en oftast, eins og fram kom hér að fyrr, flokkur sem gengur út frá því að lögmál eins og þau að 2+2=4 séu almennt í fullu gildi.

Afsprengi Sjálfstæðisflokksins, Viðreisn, virðist ekki vita hvaðan hún er að koma, hvar hún sé, né hvert hún er að fara.

Framsóknarflokkurinn er eins og hann hefur verið alla tíð, fyrst og fremst flokkur sveitanna að eigin mati, þ.e. landbúnaðarins og ferðaþjónustunnar í seinni tíð, vegna þess að hún fer að stórum hluta fram í sveitum, þó ekki sé það alveg.

Landbúnaður í huga framsóknarmannsins er sauðkindur, kýr, hestar og síðan eitthvað annað, sem þeir hafa séð en ekki áttað sig á, s.s. garðyrkja, svínarækt og kjúklinga, ásamt varphænsnabúskap til eggjaframleiðslu, því framsóknarmaðurinn vill fá harðsoðið egg á brauðið sitt og gjarnan með síld líka.

Þar kemur reyndar dálítið babb í bát hugmyndafræðinnar, því sá fiskur kemur úr sjó, en þeir láta sig bara hafa það, auk þess hafa þeir tekið eftir því að egg eru notuð við bakstur, en líklega hefur það byrjað með því að hlaðhænsnin verptu eggjum sem eitthvað þurfti að gera við og eins og við mátti búast fundu konurnar ráð við því.

Og hrossum þykir þeim gaman að eins og fólki allra flokka.

Samfylkingin hefur verið að leita að fjörunni sinni og á endanum tókst það með nýjum formanni sem hefur vit á peningum og ýmsu fleiru. Takist vel til með framhaldið, gæti orðið eitthvað úr flokknum, sem sveigt hafði af leið heilbrigðrar skynsemi.

Sem stendur er flokkurinn dálítið á reiki eins og heyrðist, þegar þingmaður tjáði sig um afturhvarf til fortíðar þegar rætt var um Hvammsvirkjun. Hvort sú ágæta þingkona sem þar tjáði sig um orkuþörf þjóðarinnar gerði það á þann hátt sem hún gerði, með fulltingi formanns og forystu flokksins verður að koma í ljós.

Formaðurinn heitir Kristrún en sú sem Ríkisútvarpið ræddi við Þórunn, svo augljóst má vera að ekki var um sömu konuna að ræða.

Auk þess sem heilbrigð skynsemi segir okkur að fleira fólk og aukinn atvinnurekstur, að ógleymdum rafmagnsbílunum, sem öllu eiga að bjarga, þarfnast rafmagns, sem með einhverjum hætti verður að framleiða og flytja til notenda.

Þingkonan boðaði kertaljós og klæðin rauð og þó ljós geti verið rauð, sem henni líkar trúlega vel við, þá er erfitt að framfleyta sér á draumi sem gæti átt það til að breytast í martröð.

Píratar eru utan sviðsins ef svo má segja, Flokkur fólksins er ekki flokkur fólksins og hvort fleiri flokkar eru á þingi hefur ritari ekki tekið eftir!


Hvalræði innan ríkisstjórnarinnar

Skjámynd 2023-06-21 074645Í gær bárust af því fréttir að búið væri að banna hvalveiðar, u.þ.b. sólarhring áður en þær áttu að hefjast.

Nokkru áður spurðist til ferða manns sem staðið hafði að glæp fyrir nokkrum árum.

Sá var á siglingu ekki fjarri, en hafði unnið sér það til frægðar að standa að baki þess að sökkva hvalveiðiskipunum þar sem þau lágu bundin við bryggju.

Hvort eitthvert samband er þarna á milli eða ekkert, vitum við ekki um sem stendur, en alla vega fréttist ekki af því að sent hefði verið varðskip til þess að sækja lýðinn.

Svo neyðarlegt sem það er, þá fréttist á sama tíma af hvalreka á Vatnsleysuströnd, en enn sem komið er hefur ekkert spurst um að Vinstri græn séu mætt á staðinn til að kanna málið.

Eflaust munu þau gera það og reyna sem þeim er unnt að drösla hræinu út í sjó og náttúrulega að að blása í það lífi, en samt eftir að hafa kannað hvort Jónas leynist í því!

Það alvarlega í stöðunni er að stjórnsýsla umhverfisvæningjanna hefur trúlega skapað þjóðinni bótaskyldu, vegna vinnubragðanna.

Formaður Framsóknarflokksins vill fá opinn fund með ráðherranum sem að banninu stendur og kallar eftir ,,meðalhófi", sem torvelt verður að fá fram þegar vinstrigræningjar eiga í hlut; þeirra aðall er að taka ákvarðanir þegar þeim finnst þess þurfa og af því, að þeim finnst sem þeir eigi að gera það.

Gera fyrst og hugsa svo og ef tjón hlýst af, að láta þjóðina bera tjónið.

Þau varðar ekkert um fyrirtækið sem að hvalveiðunum hefur staðið um áratuga skeið og þaðan af síður um fólkið sem fyrirvaralaust missir vinnu sína.

Hvað hinir flokkarnir í ríkisstjórninni hafa um málið að segja getum við séð á klippunum hér að ofan og við höfum líka séð það í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi.

Sama dag bárust af því fréttir að allir ættu að éta gras og alls ekki kjöt, en leyfilegt yrði að borða fisk, svo furðulegt sem það er.

Hvalveiðibannið mun vera til komið vegna máls sem kom upp á síðustu vertíð, þegar veiði dýrs lukkaðist illa svo ekki sér meira sagt og í stað þess að krefjast úrbóta skal nú hvalveiði vera bönnuð.

Það þykir fínt að leika sér að því að kvelja laxfiska á þann hátt, að eftir að öngullinn hefur verið í þá settur, hefst veiðimaðurinn handa við að ,,þreyta" fiskinn og að lokum er hann dreginn á land, öngullinn losaður úr honum, fiskinum sleppt og leikurinn hafinn að nýju.

Nú gerum við ráð fyrir að laxveiðar af þessu tagi verði bannaðar fyrirvaralaust, svo ekki sé nú minnst á hreindýraveiðar og fugla, sem vissulega geta farið allavega ef illa tekst til.

Samræmi í gjörðum er ekki aðall tilfinningabunktanna sem búið hafa um sig í VG, en þau eru svo óumræðilega góð - að eigin mati - að þau kunna sér ekki læti þegar gæska og mannúð er annarsvegar.

Hætt er við að um þau fari, þegar tilfinningalíf plantna rennur upp fyrir þeim og spurningin er ekki hvort heldur hvenær.

Þá verður fyrst tekið til við að banna, stöðva og hefta!


Kíkí, Biden og Trump

Guð blessi kónginn sagði Kíkí og ekki fer spurnum af því að hann hafi lært að Skjámynd 2023-06-20 060950orða drottninguna í bænum sínum, en vel getur svo verið þó bloggari muni það ekki eftir allan þennan tíma sem liðinn er.

Hann sagði samt ýmislegt fleira eins og okkur rámar í þegar við hugsum til baka. 

,,Þú svo sannarlega náðir tökum á mér"! söng afmælisbarnið, sem var um daginn, Sir Ronald Doglas Davies og sló í gegn svo um munaði.

Og gæti það eins átt við kvensnift sem Trump mun hafa haft gaman af.

Kíkí kallinn hinn fiðraði, fann til með konu einni sem við munum mörg eftir og sagði þá á sinni páfafuglísku ,,aumingja Pála" og Pála bráðnaði í hjarta sínu þó hún vildi ekki láta mikið á því bera.

Að vera páfagaukur er að því leiti til gott að enginn er svo kröfuharður að krefjast þess að maður, sem er páfagaukur, þurfi að standa reikningsskil orða sinna.

Jonni átti Kíkí og lengra náði það ekki.

Eitt sinn var sungið: Hani krummi hundur svín og endur fyrir löngu! 

Trúlega hefur Biden ekki heyrt þann söng, enda á máli sem hann skilur ekki, en ýmislegt hefur verið sungið á hans ástkæra sem hann ætti að skilja ef hann hlustar og leggur sig fram.

Að óska löngu látinni drottningu alls hins besta er svo sem ekkert slæmt. 

Að hafa ekki tekið eftir því, eða frétt með einhverju móti, að Bandaríkin urðu sjálfstæð frá Bretlandi fyrir um hálfu þriðja árhundraði síðan er frekar óheppilegt, sérstaklega ef um forseta er að ræða.

Allir geta gert mistök, forsetar sem aðrir og sandpokar sem lagðir eru í veg fyrir gamalmenni eru frekar slæm gildra.

Hinn aldraði maður var búinn að taka í hendur á um þrjúhundruð mönnum og hafi hann látið sér nægja eina hendi, eins og flestir gera, þá gæti verið um að ræða um 150 handarbönd.

Það er meira en nokkrum manni er ætlandi, sérstaklega ef lagðar eru fyrir hann gildrur til að klifra yfir og hvortveggja þarf að gera á sama tíma.

Þrjú hundruð sandpokar!

Geri aðrir betur og það þó yngri séu og ekkert er að marka þó Kíkí hafði ekki hnotið um pokadruslurnar, því hann hefði að sjálfsögðu flogið yfir þessar hindranir og sent pokalagningarmönnum  páfagaukstóninn.

Hvað hefði Trump gert undir sömu kringumstæðum?

Hefði hann skoppað léttfættur  og leggjalangur yfir hindranirnar og látið sem ekkert væri?

Nei!

Hann hefði farið aðra leið, því hann hefði neitað því að pokarnir væru þarna, neitað því að hann hefði hnotið um þá og kallað Kim Jung Un sér til vitnis um að allt sem hann segði væri satt.

Ef það hefði ekki dugað til, hefði hann fengið konu nokkra, sem fræg mun vera fyrir að hafa leikið í kvikmyndum, sér til vitnis um að allt væri þetta eitt allsherjar samsæri sem ekkert mark væri takandi á.

Þeir eru á svipuðu róli karlarnir tveir hvað aldurinn snertir og ættu að öllu eðlilegu að vera sestir í helgan stein og farnir að njóta lífsins.

Sá síðarnefndi gæti farið að sökkva sér í lestur þeirra gagna sem leynst hafa í umhverfi hans, ýmist í tölvutæku formi, en þó meira ef marka má fréttir, í pappírsútgáfu. 

Sé takandi mark af fréttum sem borist hafa af pappírsást forsetans fyrrverandi ætti það að geta dugað honum til lestrar í fjölda ára.

Aðra sögu er að segja af Biden garminum. Tölvan góða sem sagan segir að Hunter sonur hans hafi tekið með sér frá Úkraínu, er trúlega ekki aðgengileg til lestrar fyrir hann né aðra. Er það leitt því gera má ráð fyrir að í henni sé safaríkt efni af kræsilegasta tagi.

Fuglinn sem hér var nefndur til sögunar í upphafi, er trúlegast kominn til feðra sinna, en þó er það er alls ekki víst, sé eitthvað að marka hve gamlir fuglar af þessu tagi geta orðið.

Hann gæti því sem best kveðið með sinni rödd:

Guð blessi forsetann og forverann, ef hann þá nær orðunum án þess að hnjóta um þau á sinni páfafuglísku.

Þarf samt að gæta þess, að ekki verði á vegi hans sandpokar, klámdrottningar, né huntínskar tölvur.

 


Draumurinn um orkuna sem verður til í tenglinum

2023-06-19 (7)Björn Bjarnason skrifar um raforkuöflun og leyfið til Hvammsvirkjunar sem ekki fékkst.

Það olli furðu, að þegar allt virtist vera klárt í því flækjufótarkerfi sem búið er að koma upp um þessi mál, að þá var það stöðvað í síðasta skrefinu.

Þórðargleði þeirra sem ekki geta komist út úr draumsýninni um að allt geti orðið til af engu, er líka tekin til umfjöllunar og þar sérstaklega getið viðtals (sem undirritaður heyrði) við þingkonu, sem virðist trúa því, að þótt þjóðin stækki, fyrirtækjum fjölgi o.s.frv., að þá gerist það samt ekki og því þurfi t.d. ekki meiri orku.

Hvort það gildir líka um húsnæði og þjónustustofnanir o.fl. væri gott að fá fram og eins hvort stjórnmálaflokkurinn sem konan er í, styður þessar kenningar.

Hvernig þetta dæmi gengur upp er ekki gott að segja, en augljóslega þarf meira en venjulega stærðfræðikunnáttu fengna í barnaskóla, til að dæmið gangi upp.

Pistill Björns Bjarnasonar er stuttur og skýr og spurning hvort hann gæti ekki gengið sem grunngagn til endurmenntunar þeirra þingmanna og annarra, sem trúa og telja að hægt sé að tvöfalda þjóðfélag á nokkrum árum, án þess að það segi einhverstaðar til sín á þann hátt að við þurfi að bregðast.

Nema að í fullu gildi sé:

Að allt geti orðið til af engu, án þess að það geti orðið að engu, og það bara af því bara!


Þegar lagt er af stað. er gott að vita hvert ætlunin er að fara.

Skjámynd 2023-06-18 100147Á myndunum hér til hliðar, sjáum við helstu bústofnana sem notaðir eru til kjötframleiðslu hér á landi.

Í umræðunni hefur að undanförnu komið fram gagnrýni á innflutning landbúnaðarvara, einkum kjötvara og hefur gagnrýnin beinst að þeim bændum sem eru í framleiðslu, en eru jafnframt að bjóða í svokallaða ,,innflutningskvóta”.

Nú síðast er viðtal við Geir Gunnar Geirsson um málið í vefritinu Heimildinni.

Gunnar útskýrir ágætlega hvers vegna farin er þessi leið og sannleikurinn er sá að í raun, er verið að verjast kerfi sem komið var á fyrir nokkuð mörgum árum og má m.a. rekja til tollasamnings sem gerður var við Evrópusambandið fyrir tæpum áratug.

Sá samningur var til þess gerður að auðvelda útflutning á kindakjöti til Evrópusambandsins, það er að segja, samið var um að í stað fyrir heimild fyrir útflutning á kindakjöti, fengju íslenskir aðilar að flytja inn til Íslands alifuglakjöt, svínakjöt, nautakjöt og osta inn til Íslands.

Samningarnir voru sem sagt ,,gagnkvæmir”, en á þann hátt að samið var um að skaða þrjár búgreinar í þeirri trú að með því móti mætti bjarga einni, það er að segja sauðfjárræktinni.

Þetta hefur náttúrulega ekki gengið eftir, en hugsanlega hefði verið hægt að bjarga þeirri búgrein með því að taka af framfæri ríkisins, örbúskap sem ekki er annað en ríkisstyrkt sportmennska, sem stunduð er í sveitum og þéttbýli til þess eins, að framleiða kjöt til neyslu á heimilum þeirra sem í hlut eiga.

Auk þess sem eitthvað er selt út fyrir heimilið, og er þetta stundað að jöfnum hluta á framfæri ríkissjóðs og hjá þeim sem eru að reyna að stunda búgreinina sem atvinnuveg sér og sínum til framfæris.

Kerfið sem búið er við, var búið til af stjórnvöldum og er af framsóknarkyni og til þess gert, að búa til samning við Evrópusambandið um innflutning á alifuglakjöti, svínakjöti og nautakjöti og ostum, í skiptum fyrir tollfrjálsan innflutning á lambakjöti inn til Evrópu.

Minnistætt er þegar kúabændur og fleiri mótmæltu þessu ráðslagi á fundi á Hótel Selfossi, að þá þrumaði þáverandi landbúnaðarráðherra yfir talsmenn þeirra:

,,Þið verðið bara að standa ykkur!"

Því er það, að menn áttu ekki annars kost en að reyna að verjast líkt og fram kemur í viðtalinu í Heimildinni, sem hér var fyrr vitnað til.

Geir Gunnar Geirsson sem þar er í viðtali, segir þegar hann er spurður út í innflutning fyrirtækis sem jafnframt er í búrekstri, (og hér kemur fyrst, endursögn blaðamanns):

,,Spurður hverju hann svari gagnrýni sem ýmsir hafi hent á lofti, að með innflutningi fyrirtækja eins og Stjörnugríss á landbúnaðarafurðum, séu bændur og fyrirtæki í landbúnaði í raun að saga undan sér greinina sem þau sitji á, svarar Geir Gunnar því til að hún sá að sumu leyti rétt.”

Síðan kemur það sem haft er eftir honum beint:

„Þetta er gagnrýni sem á rétt á sér. Við viljum auðvitað helst framleiða sem mest hér á Íslandi en það er bara ógerlegt með þeim aðstæðum sem stjórnvöld skapa með þessum tollasamningum.“

Það eru aðstæðurnar sem stjórnvöld sköpuðu, sem setja menn í þessa stöðu og þangað ættu þeir sem gagnrýna fyrirtæki bænda fyrir að taka þátt í tollaútboðunum að snúa sér með gagnrýni sína.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband