6.3.2009 | 21:51
Starfsumsóknin
Undirritaður sækir hér með um stöðu þá er auglýst hefur verið, þ.e. stöðu Seðlabankastjóra.Hæfi mitt til starfsins er eftirfarandi:
- Hef ekki starfsmenntun til starfans, enga reynslu sem tengist bankastarfsemi aðra en þá að hafa tekið út innistæðu af reikningi mínum í banka.
- Get verið fúll, ef svo ber undir (sem er frekar oft) og er einkar laginn að snúa út úr fyrir öðrum.
- Mér finnst smjör frekar gott og nota það óspart.
- Er kominn á þann aldur, að reikna má með að ég fari á eftirlaun um það leiti sem ég er kominn með lágmarks hæfni til starfans.
- Er katta og hundavinur, en enginn sérstakur mannvinur.
- Er ekki kominn með skalla og get safnað hári og haft það viðeigandi úfið.
- Þekki ekki forsætisráðherra, en hugsanlega er hægt að bæta úr því.
- Finnst leitt og óþarft að greiða reikninga óreiðumanna.
- Þykir gaman að spila Bridge.
- Get átt það til (frekar oft) að vera hrokafullur og leiðinlegur, ef það á við (sem er oftast).
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Heill og sæll; Ingimundur minn !
O; ekki ætti þeim; flokks félögum þínum (vonandi fyrrverandi - eða hvað ?), í Samfylkingu frjálshyggjunnar, að verða skotaskuld úr, að smeygja þér inn fyrir anddyrið, að Kalkofnsvegi 1, hinna Reykvízku, myndir þú fast að durum knýja.
Með beztu kveðjum; austur yfir fljót - úr Hveragerðis og Kotstrandar sóknum /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 22:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.