12.5.2022 | 08:50
Lína í Kattholti og íslensk matvælaframleiðsla
Vigdís Häsler framkvæmdastjóri Bændasamtakanna ritar grein sem birt er í Morgunblaðinu 12.5.2022; grein sem vert væri að sem flestir læsu.
Niðurlagið er smellið, en í greininni líkir Vigdís ,,[...] tilveru bænda við líf Línu, vinnukonunnar í Kattholti sem oft og iðulega var send út í fjós að mjólka kýrnar ef heimilisfólkinu þótti nóg um hennar skoðanir og athugasemdir."
En þegar aumingja Lína var búin að sinna fjósastörfunum þótti hún vart í húsum hæf vegna fjósalyktarinnar!
Eða eins og segir í greininni:
,,En á meðan aumingja Lína skrúbbar af sér fjósaþefinn kann það að vera álitamál, á meðan sveitarfélögin eru ekki að sinna skipulagsskyldum sínum í samræmi við stefnu stjórnvalda, hvort flokkun landbúnaðarlands til framtíðar litið m.t.t. ræktunarmöguleika sé best fyrir komið hjá sveitarfélögunum sé það markmið stjórnvalda að tryggja fæðuöryggi þjóðar til framtíðar. En Lína er auðvitað ekki í framboði."
Á tímum þegar æ erfiðara er fá heimildir til að byggja upp í landbúnaði svo sem nýleg dæmi eru um bæði á Kjalarnesi og á Suðurlandi, verður manni hugsað til Línu eftir lestur greinar Vigdísar!
En kannski ,,er bara best" að flytja inn allar þær landbúnaðarvörur sem þjóðin þarfnast og sleppa því að leiða hugann að því:
Að einhverstaðar hefur einhverju verið fórnað, til að hægt væri að framleiða matvælin sem við neytum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.