4.9.2020 | 11:51
Fjölmiðlastyrkir
Í Kjarnanum (1. september 2020) birtast upplýsingar um styrki til fjölmiðla.
Hægt er að hafa ýmsar skoðanir á ráðstöfun fjármuna almennings til þessara hluta og listinn er um margt fróðlegur.
Á honum eru eftirfarandi samkvæmt því sem sagt er í Kjarnanum:
,,Árvakur [...] 99,9 milljónir, Sýn 91,1 milljón og Torg 64,7 milljónir. [...] Birtingur útgáfufélag, sem gefur út Mannlíf, fær 24,5 milljónir, Myllusetur, sem gefur m.a. út Viðskiptablaðið og Fiskifréttir, fær 20 milljónir, útgáfufélag Stundarinnar fær tæpar 17,8 milljónir, N4 fær 13,5 milljónir og útgáfufélag Kjarnans fær tæpar 9,3 milljónir króna. Bændasamtök Íslands, sem gefa út Bændablaðið, fá einnig tæpa 9,3 milljónir [...] Víkurfréttir og Skessuhorn, sem fá vel á áttundu milljón í stuðning. MD Reykjavík, sem gefur út tímaritið Iceland Review, fær 5,9 milljónir króna og Útvarp Saga fær 5,2 milljónir. Aðrir miðlar fá minna."
Vitað var þegar ákveðið að feta þessa slóð, að vandratað yrði eftir henni og rétt er að taka fram að undirritaður veit ekki hvaða miðlar það eru sem ,,fá minna".
Það sem vekur athygli er að einn miðill, sem er í hagsmunagæslu fyrir atvinnuveg - landbúnað og að sumum finnst aðallega sauðfjárrækt - fær 9,3 milljónir, þ.e.a.s. Bændasamtökin sem gefa út Bændablaðið fá styrkinn.
Hvort önnur hagsmunagæslusamtök eru undir liðnum ,,fá minna" vitum við ekki, en sá sem ritar þennan pistil telur sig muna að Bændablaðið hafi verið rekið með hagnaði.
Var það hugmyndin þegar farið var í þessa vegferð að hagsmunagæslusamtök yrðu styrkt til útgáfustarfsemi?
Hafi svo verið erum við áreiðanlega mörg sem höfum misskilið markmiðið.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.