FFH og USA

Ekki er annað að sjá en fljúgandi furðuhlutir og umræða um þá, njóti ómældrar ánægju meðal Bandaríkjamanna, a.m.k. sumra.

Af og til berast fréttir af því að einn eða annar hafi séð flygildum þeim sem hér er um rætt, bregða fyrir og stundum hefur það gengið svo langt að menn hafa talið sig sjá stjórnendur faranna. Líklega er það þó frekar ímyndun en veruleiki og vitanlega er líklegast að allt sé þetta ,,tóm þvæla og vitleysa" eins og eitt sinn var sungið.

Skjámynd 2023-07-28 064929Á ruv.is er sagt frá því, að hafin séu réttarhöld yfir bandarískum mönnum sem telja sig hafa fyrir því sannanir að eitt slíkt far hafi brotlent og verurnar sem því stjórnuðu farist.

Fréttir af þessu tagi eru ekki nýjar af nálinni eins og fyrr var getið, en það sérkennilega er að flestar berast þær frá Bandaríkjunum.

Stundum hafa komið fram skýringar á fyrirbrigðunum eins og þær, að í raun sé um að ræða flugför á vegum Rússa eða Kínverja og heimsfrægt er orðið, hve mikla áherslu hernaðaryfirvöld í Bandaríkjunum hafa lagt á að skjóta niður veðurbelgi í þeirri trú, að um dularfull fyrirbrigði af þessu tagi sé að ræða.

Stundum er sagt að ,,illur eigi sér ills von", en ætli ekki megi segja að æði langt sé seilst, að halda því fram að verur úr óravíddum geimsins leggist í ferðalag eða ferðalög til þess eins að kíkja á bandarískt samfélag og þó illskan geti verið þar til staðar, þá finnst hún mun víðar og það í vel sambærilegum mæli og þar. Gæti þess vegna eins verið áhugavert að taka það til skoðunar!

Hvers vegna hugmyndir af þessu tagi geta haldist við um áratuga skeið í samfélagi sem er vel upplýst og býr yfir þekkingu af margvíslegu tagi hlýtur að vera áhugavert fyrir sérfróða um þjóðlega vænisýki.

  


Samningur og lína

Skjámynd 2023-07-25 082806Í Morgunblaðinu er sagt frá óvenjulegum ráðningarsamningi innan þjóðkirkjunnar, þar sem undirmaður biskups réði biskup til áframhaldandi starfa.

Þegar ritari var til sjós gengu málin þannig fyrir sig að ráðningastjóri útgerðanna réði menn til starfa og engum hefði dottið í hug að háseti myndi ganga frá ráðningu skipstjóra, eða dagmaður í vél hefði ráðið yfirvélstjóra.

Nú eru komnir nýir tímar með alls kyns blóm í haga og þá getur farið svo, að hásetinn ráði skipstjórann o.s.frv.

Á öðrum stað í blaðinu spyr þingmaður Miðflokksins, hvort svokölluð ,,Borgarlína” megi kosta hvað sem er?

Svarið mun liggja í augum uppi fyrir flesta, nema Miðflokks séu, en þar á bæ eru tölur ekki það sem skiptir máli, nema stundum, ef til vill og kannski, og jafnvel aðeins þegar farið hefur verið öfugu megin frammúr rúmi sem stendur upp við vegg.

Margir muna eftir rándýrum grjótflutningum sem formaður Miðflokksins stóð fyrir á sínum tíma, engum til gagns.

Þó er rétt að taka fram að brasinu fylgdi nokkur atvinnusköpun fyrir þá sem í því stóðu, en að öðru leyti var um tilgangslaust brölt að ræða.

Svarið við spurningu miðflokksformannsins er því:

Borgarlína má ekki kosta hvað sem er!


Búr fyrir karla

Gott og skynsamt fólk hefur fundið það út að ekki sé gott fyrir fugla að búa í búrum, nema páfagaukar séu, eða finkur, eða önnur slík stofustáss.

Hvort leyfilegt er að halda mýs í búrum eins og einu sinni þótti fínt, er ekki vitað af þeim sem þetta ritar.

Hænur mega sem sé ekki vera í búrum, því hið góða fólk hefur haft af því spurnir úr hænsnaheimi, að hænunum leiðist búrsetan.

Skjámynd 2023-07-24 103133Sunak hinn breski hefur lítið af þessu frétt, enda áhugamál hans á öðru sviði, ef svo má segja; hann er sem sé í mannheimum, að einhverju leiti að minnsta kosti og því er landbúnaðarvesen honum frekar framandi.

Því er það, að hann hefur tekið upp á því að láta útbúa búrheima fyrir menn - og tökum eftir því að menn eru karlmenn í þessu tilfelli - og vefritið Heimildin upplýsir okkur um hina nýju búrheima.

Sunakbúrið er stórt og mikilfenglegt, enda búrhaldarinn stórhuga og í kassanum ætlar hann að geyma nokkur hundruð karla, sem lítið munu hafa sér til yndis annað, en aðra karla í karlheimi Sunaksins.

Fimm hundruð skulu þeir vera karlarnir sem í búrinu fá að búa og engar konur verða þar, ef dæmið gengur upp.

Hvor það gengur eftir, á eftir að koma í ljós, en römm er sú taug sem rekka dregur í hinar fögru konur mannheima og hætt er við, að reynt verði, að komast í laumuspili bæði um borð og frá borði.

Hvað sem því líður hefur hinn spengilegi Sunak séð ljósið í flóttamannagöngunum og séð leið til að leysa flóttamannavandamálið með því að búa til annað vandamál enn stærra og sem torveldara verður viðureignar:

Hann ætlar sem sé, að kynferðisflokka hluta mannheima í tilraunaskyni. Hvort tilraunin lukkast mun framtíðin leiða í ljós.

Kappinn fær alla vega 1 fyrir viðleitni til að leysa vandann, þrátt fyrir að hætt sé við að verið sé að búa til annan vanda, sem bæði sé bæði stærri og meiri!


Lausganga og kristilegt umburðarlyndi

Skjámynd 2023-07-23 053314Blaðamaður Bændablaðsins tekur saman ítarlega grein um lausagöngu sauðfjár í nýjasta eintaki blaðsins og ræðir við bændur, lögfræðinga, sveitarstjórnarmenn og forystumenn í Bændasamtökunum.

Niðurstaðan virðist vera sú að málið sé flókið og erfitt og allt að því óleysanlegt og að sauðfjárbúskapur verði ekki stundaður á þann veg, að sauðfjárbóndinn ,,gæti síns fjár".

Vegagerðin þarf að girða með vegum og setja niður ristahlið víðar en gert hefur verið, sé rétt skilið, en það sérkennilega er, að við sem búum í sveit höfum veitt því athygli, að vegagerðin gerir einmitt þetta þ.e. girðir með vegum, þar sem þeir fara í gegnum lönd og/eða á landamerkjum, en að auki leggur hún til efni til viðhalds girðinganna.

Vandamál vegna beitar sauðfjár er að mestu úr sögunni á því landsvæði sem sá sem þetta ritar býr á og þeir sem halda sauðkindur, virðast að mestu hafa tekið upp þann sið, að beita því á land sem þeir annað hvor eiga, eða hafa umráðarétt yfir.

Á árum áður var hins vegar ætlast til þess að kindur fengju að bíta gras þar sem þætti best að vera og jafnframt var þess krafist að landeigendur skiluðu þeim í hendur eigenda að grasáti loknu.

Sá ,,siður" er aflagður eftir því sem ritari veit best, en svo er að sjá sem það sé að einhverju leiti svæðisbundið, því enn er deilt um svokallað ágangsfé, þ.e. fé sem gengur í löndum nágranna sauðfjárbænda.

Prestur nokkur á Austfjörðum tekur upp hanskann fyrir þá sem beita vilja lönd annarra og kallar þá sem ekki vilja kindur í landi sínu, ágangsfólk í Fésbókarpistli.

Pistillinn er nokkuð langur og auðséð að málið liggur þungt á guðsmanninum. Hvort sá í efra tekur undir málflutninginn er ekki vitað en líklegt er að borðorðaboðskapurinn þvælist fyrir presti og sé það rétt, verður hann trúlega að eiga það við yfirboðara sinn, þann sem boðað er oftast, en líklega ekki alltaf, að menn skuli leggja trúnað á og sækja styrk til.

Pistilinn geta menn nálgast sér til fróðleiks á Fésbókinni, eins og áður var getið, en rétt er að taka fram að þangað verður tæplega sótt fræðsla um hvernig hægt sé að auka þekkingu á umburðarlyndi og kristilegu siðgæði.


Það sem má og það sem ekki má

Það er ýmislegt sem ekki má og svo er líka það sem má.

Ef þú ert íslenskur pólitíkus þá máttu segja nær hvað sem er og gera jafnvel enn fleira og getur síðan komið fram og sagt að þér þyki það leitt að hafa sagt ósatt. Best er náttúrulega að reyna að halda því fram að það hafi verið fyrir mistök. Hvort nálin skoppaði til á plötunni, röng spóla var sett í segulbandið, eða skrambans alnetið var að rugla þig, gæti skýrt málið, en gerir það ekki samt.

Ef þú ert bandarískur pólitíkus, eða langar til að verða slíkur, þá læturðu allt flakka sem þér dettur í hug að geti hrifið væntanlega kjósendur, því sannleikurinn er afstæður eins og kunnugt er.

Sért þú breskur pólitíkus og sért ekki tiltakanlega breyskur, sem er reyndar ekki líklegt, læturðu byggja fljótandi blokk fyrir flóttamenn til að afla þér vinsælda.

Svona mætti áfram telja og svo dæmi sé tekið, þá getur verið hægt að fara í takmarkað stríð við nágranna sína og kalla það eitthvað allt annað, eða þykist ekki hafa komið þar neitt nærri. Missi þeir þolinmæðina og svari með innrás eða öðrum leiðindum, er hægt að beita fyrir sig hverju sem er og leita aðstoðar í gegnum svokallaða fóbíu og aðstoðin berst fyrr en varir. Eftir það er síðan ekki annað að gera en þreyja þorrann og góuna og vonast eftir betri tíð með nýjum sannleika. 

Bíða eftir því að þeir springi á limminu og launi þér lambið gráa, með stríði sem ekki er stríðni.

Kallar þá á aðstoð og færð hana að sjálfsögðu, því sannleikurinn er afstæður.

Þegar hann, þ.e. andstæðingurinn er dottinn í bjórinn og farinn að hirða hagnað af þeirri framleiðslu, þá er góð von um almennilegan stuðning, því bjór er ekki hvað sem er, en góður að drekka.

Ef til vill líka góður til að komast í gegnheilt ruglástand í von um, að með því móti megi skilja þá sem óskiljanlegir eru.

Þessari furðulegu upptalningu er ekki nærri lokið og ekki stendur til að reyna að ljúka henni nú né síðar!

 

 


ÍSLAND ÚR NATO, eða ,,tóm þvæla og vitleysa".

Svona segja menn ,,Ísland úr NATO og herinn burt"!... þegar setið er í ríkisstjórn.

Ísland er með allt á hreinu og ráðamenn okkar þurfa ekki að hugsa eins mikið og félagar þeirra í NATO; standa með Úkraínu og gefa í skyn að það geri NATO ekki.

2023-07-12 (4)Stoltenberg segir: ,,Úkraínu verður boðin aðild að Atlantshafsbandalaginu þegar tekist hefur að uppfylla skilyrði til aðildar..."

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir hins vegar: „[...] Úkraína hefur fullt frelsi til að velja hvar hún ætlar að vera í framtíðinni og hún hefur sagt með mjög skýrum hætti að hún vilji vera hjá okkur.“

Fréttamaður spyr, þ.e.a.s. ef textinn er rétt skilinn: Og þannig hafið þið markað ykkur stöðu frá Bandaríkjunum, frá Þýskalandi, frá þjóðum sem eru meira hikandi [...]?

Katrín svarar: „Ísland hefur talað fyrir mjög skýrri pólitískri afstöðu í þeim efnum, en stóra myndin er alveg skýr, að það er samstaða um að standa með Úkraínu.“

Af svarinu, sé það rétt eftir haft, má draga þá ályktun að íslenska ríkisstjórnin sé sammála NATO um hvernig afgreiða eigi málefni Úkraínu, en eins og Katrín segir í viðtalinu, þá hefur ,,Úkraína fullt frelsi til að velja hvar hún ætlar vera" og þó það nú væri!

Fréttin væri frétt, ef forsætisráðherra Íslands segðist vilja ráða því hvaða stefnu Úkraína tæki.

Stoltenberg vill að menn þurrki af fótum sér á dyramottunni, áður en gengið sé inn í húsið.

Fréttin er eiginlega ekki frétt, heldur líkari því sem eitt sinn var sungið sem ,,tóm þvæla og vitleysa".

 

 


Ísrael, Georgía og Zelensky

Klippur úr mbl.is og Morgunblaðinu 5/7/2023.

2023-07-05 (13)Á einni þeirra sést að ástandið er langt frá því að vera gott í Ísrael.

Ísraelskum stjórnvöldum gengur illa að fá íbúana sem fyrir eru, til að sætta sig við landtökur og fleiri gyðinglega siði.

Á þeirri næstu fræðumst við um að Zelensky þarf að siða til fleiri en Rússa og nú eru það Georgíumenn sem ekki eru eins og hann vill og því teygir hann sig yfir hafið með siðavöndinn góða.

2023-07-05 (17)Í frétt mbl.is segir m.a.:

,,Stjórn­völd í Úkraínu sendu í gær sendi­herra Georgíu aft­ur til heima­lands­ins og sögðu hon­um að ráðfæra sig við rík­is­stjórn sína um meðferð henn­ar á Mík­heíl Sa­akashvili, fyrr­ver­andi for­seta lands­ins. Sa­akashvili, sem einnig er með úkraínsk­an rík­is­borg­ara­rétt, sit­ur nú í fang­elsi í heima­land­inu, en hann birt­ist op­in­ber­lega á mánu­dag­inn í fyrsta sinn, og var þá horaður og veiklu­leg­ur."

Þá upplýsir Zelensky okkur um, að Rússar séu búnir að koma fyrir sprengjum á kjarnorkuverinu í Za­porizhzhia.

Úkraínar hafa sem kunnugt er, séð um það að undanförnu að senda þangað og sprengja sprengjur og virðast telja það bæði hollt og gott fyrir kjarnorkuver.

Það er að segja þegar sprengjurnar hafa fengist til að springa og hafa þeir því verið nokkuð duglegir í þeim verknaði og það svo, að sendifulltrúum Sameinuðu þjóðanna, hefur þótt nóg um og kalla þeir þó ekki allt ömmu sína, þegar hernaðarátök eru annars vegar.

Orkuverið hefur verið vinsælt skotmark Úkraína í styrjöldinni eins og áður sagði og meðal annars hafa eftirlitsmenn frá Sameinuðu þjóðunum fylgst með framferði Úkraína gagnvart verinu, en verinu náðu Rússar fljótlega eftir að stríðið braust (endanlega) út.

Endanlega er hér sett innan sviga, en eins og mörgum er kunnugt eru búin að vera átök að undirlagi Úkraína á Donbas sjálfstjórnarsvæðinu um margra ára skeið og sem meðal annars varð til þess að skotin var niður hollensk farþegaflugvél sem þar flaug yfir.

Rússar hafa haldið verinu frá því fljótlega eftir að stríðið braust út og 2023-07-05 (21)hafa unnið að því að keyra reksturinn niður, eftir að ljóst varð að úkraínsk stjórnvöld hefðu ekki lyst á rafmagni þaðan.

Hefur það gengið nokkuð vel, þrátt fyrir sprengjuregnið sem á því hefur dunið, enda þekjan gerð til að þola sitt af hverju og Rússar vel birgir af mannskap með þekkingu í rekstri kjarnorkuvera til rafmagnsframleiðslu.

Áhyggjur Zelenskys virðast snúast um, að Rússar séu svo vel tengdir við almættið, að nú séu þeir farnir að geta stjórnað veðri og vindum og því læðist að grunur um, að skemmtikrafturinn fyrrverandi, sé farinn að lesa Bulgakov fullmikið.

Sé það svo, ætti hann að hvíla sig á lestrinum um stund og sjá hvort þetta líður ekki hjá.

Gæti til dæmis litið við á Íslandinu góða og knúsað knúsínurnar sínar einu sinni enn, sér eflingar og blóðþrýstingshækkunar.

Nú eða lækkunar, ef það virkaði þannig á hann.


Grillun græningja og fl.

Í Morgunblaði dagsins (4/4/2023) er sagt frá breytingunum á Hótel Sögu, sem ekki verður lengur hótel heldur aðstaða fyrir stúdenta Háskóla Íslands, en óráðið er hvort Grillið margfræga fær að halda sér.

 

2023-07-04 (8)Fjallavirkjun

Þegar ritari var á sokkabandsárunum var honum boðið í mat á Grillinu á hátíðisdegi og þótti mikið til koma og seinna varð það frægt af óborganlegri máltíð sem snædd var þar af mönnum sem léku í kvikmynd sem fræg varð.

Nóg er til af veitingastöðum nú orðið í höfuðborginni og reyndar út um allt land, svo Grillið á Sögu, sem nú er orðin saga úr fyrri tíma, má að skaðlausu missa sig.

Í sama blaði er fjallað um landris sem hafið er á Reykjanesskaga sem varla telst fréttnæmt lengur, en það er myndtengingin við fréttina sem er ótrúlega skemmtileg, því ,,Ívar” teiknari blaðsins er látinn sjá um hana að stórum hluta!

Í blaðinu er líka aðsend grein eftir Skúla Jóhannsson og Friðrik. R. Jónsson um hugmynd að virkjunarkosti sem kallaður er Fjallavirkjun.

Gera má ráð fyrir að vinstrigræningjum allra flokka renni kalt vatn milli skinns og hörunds við letur greinarinnar, því í henni er bent á það sem getur talist vænlegur virkjanakostur til raforkuframleiðslu.

Græningjar eru almennt á móti virkjunum, rafmagni, hitaveitum og flestu því sem til framfara horfir.

Í greininni er sagt frá borun jarðganga til vað veita vatni eftir og það eitt og sér, hefur áreiðanlega afar slæm áhrif á húðir græningjanna.


Skroppið út í geim

2023-07-02 (2)Þegar barist er um drulluna í Úkraínu, hver geti valdið mestum skaða í Frakklandi, hvali á Íslandi og hvort Íslandsbanki hafi verið seldur eða gefinn, eru þeir til sem hugsa hærra, lengra og dýpra samkvæmt því sem segir í NYT.COM.

 

Kanar virðast stefna á að halda partí með geimverum skv. því sem fram kemur á miðlum þeirra a.m..k. sumum t.d. The Zerohedge.

Og eru þar með á blábrúninni og vel 2023-07-02 (5)getur svo sem verið að Biden sé ein slík, en samt ekki líklegt, sé saga hans skoðuð og þó Trump sé trompaður og tröllgalinn, þá er ólíklegt að hann sé af geimverustofni.

Nema hann sé mislukkað vélmenni og af geimverum sendur okkur til skemmtunar, eða leiðinda.

Við eigum einn álitsgjafa sem líkt hefur verið við geimveru og sá sem það gerði hlýtur þá að vita hvernig þær líta út, en merkilegt væri nú ef allar slíkar í hinum ógnarstóra alheimi væru eins, svo þetta gengur ekki upp hjá manninum!

Hvað sem öllu þessu líður, mun þessi ferð afla okkur fróðleiks í framtíðinni 2023-07-02 (4)um fortíðina og yfir í nútíðina - sem þá er í framtíðinni - um fortíðina, sem þá verður komin í nútíðina!

Nú botna ég ekki orðið neitt í þessu og hef aldrei gert og get ekki einu sinni spyrnt mér upp!


Gott ,,plan"?

Allt á að verða til af engu og verða síðan að engu.

2023-06-30 (3)Þjóðin sem áður lifði af því sem hafið og landið gaf og gerir að stórum hluta enn, stefnir að því að lifa á ,,einhverju öðru".

Jón á að toga í Tvíbjörn og Tvíbjörn síðan í Þríbjörn... o.s.frv. Stefnan í orkumálunum er:

Að fljóta sofandi að feigðarósi og ósinn sá er í þessu tilfelli orkuskortur.

Lýsa á upp, hita hús og skaffa atvinnutækjum orku og fleira, með engu.

Þá á að fjölga þjóðinni sem unnt er og ef það er ekki hægt með fjölgun þeirra sem fyrir eru, skal flytja inn nýja íbúa, sem gæti vel verið gott ef hugsjónin næði þangað, að gera ráð fyrir að blessað fólkið hefði eitthvað að gera til lengri tíma litið.

2023-06-30 (5)Stefnan virðist vera, meðvitað eða ómeðvitað, að gera atvinnurekstri eins erfitt fyrir og mögulegt er, eins og margnefnt bann á hvalveiðum er skýrt dæmi um.

Allir eiga að hafa vinnu, en það á að gerast af sjálfu sér og eftir því sem virðist, helst án þess að snert sé á neinu.

Spurning er hvort ekki þurfi að stofna sérstakan stjórnmálaflokk, með það sem aðalmarkmið, að koma þessari framúrstefnulegu hugmyndafræði í framkvæmd?

Nei, þess þarf ekki, því flokkurinn er til og fer með forystu í ríkisstjórninni og hinir stjórnarflokkarnir dingla með. Líklega í þeirri von, að mun lengra sé í kosningar en almanakið segir, eða að vonin sé, að ævintýrið úr Borgarnesi endurtaki sig, þannig að talning atkvæða að loknum kosningum fari fram með þeim hætti sem henta þykir og niðurstaðan verði sú sem menn vilja.

2023-06-30 (7)Undirstöður þjóðarinnar eru nokkrar og fyrstan og fremstan má telja sjávarútveginn og þar með taldar hvalveiðar. Þá koma hinar greinarnar s.s. iðnaður, landbúnaður, verslun og þjónusta og þar með talin ferðamannaþjónusta og er þá að sjálfsögðu alls ekki allt upp talið.

Á atvinnuvegunum stendur allt sem við viljum og þörfnumst og þá viljum við fyrir engan mun missa.

Hvað vinstrigræningjar allra flokka athugi!

Því er það hart á að horfa, að svo er sem sambandið sé rofið og svo sé komið, að a.m.k. einn stjórnmálaflokkur sé á sviðinu sem metur það svo, að hægt sé að komast af án undirstöðunnar.

Vel kann að vera að hægt sé að lifa án þeirra undurstöðugreina, en hætt er við að það verði frekar þunnur magáll að naga til lengdar.

Undirritaður hefur ekki þá þekkingu sem þarf til að skilja hvernig hringrás peninganna getur haldið uppi góðu og vaxandi þjóðfélagi án þess að undirstaðan sé trygg.

Hringrásin auranna er reyndar þeim annmörkum háð, að drjúgur hluti þeirra á það til að leka niður í vel valdar holur þar sem kúra vel valdir menn, á leið sinni og setjast þar að, en það mun vera náttúrulegt eðli hins ,,frjálsa framtaks" og þykir því gott.

Sá sem er verður launa sinna samkvæmt orðtakinu, ,,að verður sé verkamaðurinn launa sinna", heldur sig sjaldnast í hinum notalegu holum, klúðrar ekki rekstri fyrirtækja og þarf sjaldnast að ,,segja af sér", ,,stíga til hliðar", eða eitthvað í þá veru.

Hann tekur einfaldlega við sínu launaumslagi - sem nú til dags mun vera orðið ,,rafrænt" a.m.k. sumstaðar - og heldur áfram að skila sínu meðan það býðst.

Það boð styttist síðan vegna gjörða þeirra sem komist hafa í valdastöður, hafa gleypt sólina og að því loknu orðið svo firrtir, að þeir banna atvinnurekstur daginn áður en hann byrjar, einfaldlega vegna þess að þeim finnst að þannig eigi að standa að málunum.

Vont er þeirra ranglæti en verra er þeirra réttlæti, var einu sinni sagt og er í fullu gildi enn. 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband