Vont og verra en verst

Vont er það og verra verður það, er viðkvæðið þessa dagana og kveðskapurinn er sannarlega ekki fallegur.

Skjámynd 2025-06-17 070548Sakleysingjarnir eru í holum sínum á meðan vondir menn brugga vélráð sem enginn sér fyrir hver verði og ekki einu sinni teiknarinn góði.

Tveir taflmenn liggja fallnir á borðinu, klukkan er við það að falla á þá sem eru til vinstri og þar með talda holubúana og ef til vill er hún fallin á þá til hægri og það er hugsað djúpt, þ.e.a.s. ef þeim er það þá fært.

Skjámynd 2025-06-19 072906Hjá okkur er staðan önnur og Morgunblaðið kann vel að meta glæsilegan forsætisráðherra, sem ber sig vel og það þó hann komi úr öðrum flokki en þeim sem blaðið styður.

En allt er það vont og verra en verst að mati Miðflokksmanns sem er búinn að tala yfir sig líkt og félagar hans, um það sem hann telur sig hafa betra vit á en þeir sem hann talar til, en hvort sú skoðun og það álit, nær út fyrir flokksherbergið er frekar ólíklegt.

,,Skattbyrði er ekki sama og skattbyrði" segir maður nokkur sem ekki er prófessor í hagfræði, því hann hefur fundið ,,nokkrar breytur" sem skipta ,,höfuðmáli" og höfuðmál er ekki sama og höfuðmál eins og allir vita sem átt hafa höfuðföt!

Skjámynd 2025-06-19 072055Við leyfum Miðflokksmanninum að hafa orðið í lokin í þessari samantekt, enda hafa þeir sóst mjög mikið eftir því síðustu daga að ,,hafa orðið", því þeir vilja segja eitthvað um flest og líklega mest um það sem þeir vita minnst um.

Svona er íslensk pólitík þessa dagana og enginn geltir að þeirri tík, er það?

Allar klippurnar eru fengnar úr Morgunblaðinu


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og tveimur?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband