Aðsend grein og fréttir

Það er eitt og annað í fernu dagsins og er þar fyrst að nefna aðsenda grein í Morgunblaðinu eftir Ólaf Halldórsson líffræðing.

Þar segir, að Bubbi Morthens hafi látið skammir dynja vegna illrar meðferðar á íslenskri tungu, en eftir þá umfjöllun, snýr höfundur greinarinnar sér að þeim sem vilja koma trjágróðri í Öskjuhlíðinni fyrir kattarnef.

Skjámynd 2023-08-26 141835Sagt er að trén torveldi flugtök frá flugvellinum í Vatnsmýrinni, en á því vandamáli er til önnur lausn og hún er sú, að koma flugvellinum burt úr miðbæ borgarinnar og t.d. í Löngusker eins og góður maður benti eitt sinn á, en lítið hefur verið gert með.

Væri farin sú leið fengju Framsóknarmenn ósk sína uppfyllta, en eins og flestir vita mega þeir ekki til þess hugsa að flugvöllur innanlandsflugs sé annarstaðar en í miðborginni.

Völlurinn yrði sem sé við miðborgina en ekki í henni og yrði þ.m. framsóknarleg niðurstaða af besta tagi. Niðurstaða sem sameinaði þörf(!?) þeirra fyrir miðborgarflugvöll, en myndi frá sjónarhorni framsóknar hafa þann galla, að borgin gæti byggst upp á eðlilegan hátt.

Allt getur þetta þó skyndilega breyst, vegna þess að nú styttist í að Framsóknarmaður taki við borgarstjórastólnum og eins og við könnumst við, þá er ekki sama hvoru megin borðs er setið, hvað varðar afstöðu til mála og málefna.

Greinarhöfundur bendir á, að sjúkraflugi megi þjóna með þyrlum líkt og gert er, en hægt væri að láta þyrlurnar lenda á til þess gerðum palli, á eða í grennd við Landsspítalann. Í greininni er einnig reifaður sá möguleiki að nota þyrlur til farþegaflugs, en það er örugglega of framúrstefnuleg hugmynd fyrir hin góðu framsóknarhjörtu og því ekki inn í myndinni!

Við skoðum líka viðtöl blaðsins við forustumenn stjórnarandstöðuflokkanna á þingi og þar vekur mesta athygli það sem haft er eftir Kristrúnu Frostadóttur formanni Samfylkingarinnar, sem er eftirfarandi:


„Stóra frétt­in í dag er að fjár­málaráðherra sé bú­inn að kasta frá sér ábyrgð á efna­hags­mál­um. Vegna þess að hann full­yrðir að það sé ekki hlut­verk rík­is­stjórn­ar­inn­ar að vinna bug á verðbólg­unni held­ur hlut­verk Seðlabank­ans,“ seg­ir Kristrún Frosta­dótt­ir formaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar í sam­tali við mbl.is í gær og seg­ist velta fyr­ir sér trú­verðug­leika rík­is­stjórn­ar­inn­ar, þegar leitað var eft­ir áliti henn­ar á aðgerðum í rík­is­fjár­mál­um sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­málaráðherra boðaði í dag. 
Þar voru kynnt áform um niður­skurð og aðhaldsaðgerðir í rík­is­rekstri á næsta ári. „Þetta er ekki það sem al­menn­ing­ur þarf að heyra núna,“ seg­ir hún og bæt­ir því við að aðgerðirn­ar ein­ar og sér séu góðar og gild­ar, enda snú­ast þær um að reka ríkið bet­ur. Hún geti þó ekki séð að það sé stór póli­tísk ákvörðun að reyna að reka rík­is­stofn­an­irn­ar bet­ur. Það sé ei­lífðar­verk­efni."

Rætt er líka við hina leiðtogana úr stjórnarandstöðunni, en þar kemur fátt markvert fram eftir því sem séð verður. Hægt er að kynna sér viðtölin t.d. á mbl.is.

Þykkvabæjarvindmyllurnar verða senn reistar að nýju, það er að segja, ef umhverfisvæningjar munu ekki rísa upp og finna þeim allt foráttu.

Eins og kunnugt er, nýta þær vindorku til að framleiða raforku og örugglega er hægt að komast að þeirri niðurstöðu að það sé skaðlegt fyrir andrúmsloftið.

Fjórða fréttin sem hér er á mynd, segir frá leit að jarðneskum leifum japanskra hermanna sem taldir eru geta verið í neðanjarðarhellum á eynni Iejima, en í fréttinni segir m.a.:

,,Nærri ára­tug­ur er liðinn frá því að fyrstu vís­bend­ing­ar fund­ust um hella­kerfið. Var kerf­is­ins getið í göml­um og ryk­fölln­um skjöl­um hers­ins á þjóðskjala­safni Banda­ríkj­anna. Kem­ur þar m.a. fram að 306. fót­gönguliðasveit hafi dag­ana 15.-24. apríl 1945 bar­ist af mik­illi hörku við sveit­ir Jap­ana, u.þ.b. 1 km norðaust­ur af fjall­inu Gusuku. Segja skjöl­in 106 jap­anska her­menn hafa fallið í bar­dag­an­um. Skömmu eft­ir að þess­ar upp­lýs­ing­ar komu í ljós var ákveðið að hefja leit, en japönsk stjórn­völd settu leit­ar­mönn­um stól­inn fyr­ir dyrn­ar. Nú stefn­ir hins veg­ar á ný í form­lega leit."

Það er eitt og annað, sem fengist er við í veröldinni og þetta voru aðeins örfá dæmi af þeirri iðju og öll fengin úr Morgunblaðinu.

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband