Kommúnismi, reiðarslag og fleira gott

Þruma, kurr og öfgafullur kommúnismi, reiðarslag og gerræði og er þá ekki allt upp talið, því það vantar orku og komið er nóg af skattlagningu á ferðaþjónustuna.

Skjámynd 2023-06-22 080847Að kommúnismi hafi og eigi eitthvað sameiginlegt með ,,stefnu” Vinstri grænna er reyndar spurning, því þankagangur og hugmyndafræði þess stjórnmálafyrirbrigðis er svo sérkennileg að hæpið er að kenna það við venjulega vitræna hugsun og engan vegin við tilraun til að búa til hugmyndafræði sem rekja má aftur til þess sem var um miðja nítjándu öld.

Við erum á frekar skrýtnum stað í íslenskri pólitík, stað þar sem venjuleg viðmið eiga ekki við og þar sem flokkur sem við teljum vera lengst til hægri af því sem í boði er í flokkaflórunni Sjálfstæðisflokkurinn, er nálægt því í mörgum málum að vera það kalla má flokk heilbrigðrar skynsemi.

Ekki lengst til hægri, nema stundum og af mönnum sem augljóslega telja sig vera yst á hægri kantinum, en oftast, eins og fram kom hér að fyrr, flokkur sem gengur út frá því að lögmál eins og þau að 2+2=4 séu almennt í fullu gildi.

Afsprengi Sjálfstæðisflokksins, Viðreisn, virðist ekki vita hvaðan hún er að koma, hvar hún sé, né hvert hún er að fara.

Framsóknarflokkurinn er eins og hann hefur verið alla tíð, fyrst og fremst flokkur sveitanna að eigin mati, þ.e. landbúnaðarins og ferðaþjónustunnar í seinni tíð, vegna þess að hún fer að stórum hluta fram í sveitum, þó ekki sé það alveg.

Landbúnaður í huga framsóknarmannsins er sauðkindur, kýr, hestar og síðan eitthvað annað, sem þeir hafa séð en ekki áttað sig á, s.s. garðyrkja, svínarækt og kjúklinga, ásamt varphænsnabúskap til eggjaframleiðslu, því framsóknarmaðurinn vill fá harðsoðið egg á brauðið sitt og gjarnan með síld líka.

Þar kemur reyndar dálítið babb í bát hugmyndafræðinnar, því sá fiskur kemur úr sjó, en þeir láta sig bara hafa það, auk þess hafa þeir tekið eftir því að egg eru notuð við bakstur, en líklega hefur það byrjað með því að hlaðhænsnin verptu eggjum sem eitthvað þurfti að gera við og eins og við mátti búast fundu konurnar ráð við því.

Og hrossum þykir þeim gaman að eins og fólki allra flokka.

Samfylkingin hefur verið að leita að fjörunni sinni og á endanum tókst það með nýjum formanni sem hefur vit á peningum og ýmsu fleiru. Takist vel til með framhaldið, gæti orðið eitthvað úr flokknum, sem sveigt hafði af leið heilbrigðrar skynsemi.

Sem stendur er flokkurinn dálítið á reiki eins og heyrðist, þegar þingmaður tjáði sig um afturhvarf til fortíðar þegar rætt var um Hvammsvirkjun. Hvort sú ágæta þingkona sem þar tjáði sig um orkuþörf þjóðarinnar gerði það á þann hátt sem hún gerði, með fulltingi formanns og forystu flokksins verður að koma í ljós.

Formaðurinn heitir Kristrún en sú sem Ríkisútvarpið ræddi við Þórunn, svo augljóst má vera að ekki var um sömu konuna að ræða.

Auk þess sem heilbrigð skynsemi segir okkur að fleira fólk og aukinn atvinnurekstur, að ógleymdum rafmagnsbílunum, sem öllu eiga að bjarga, þarfnast rafmagns, sem með einhverjum hætti verður að framleiða og flytja til notenda.

Þingkonan boðaði kertaljós og klæðin rauð og þó ljós geti verið rauð, sem henni líkar trúlega vel við, þá er erfitt að framfleyta sér á draumi sem gæti átt það til að breytast í martröð.

Píratar eru utan sviðsins ef svo má segja, Flokkur fólksins er ekki flokkur fólksins og hvort fleiri flokkar eru á þingi hefur ritari ekki tekið eftir!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband