Kríuvarp, virkjanir og skógrækt

Skjámynd 2023-06-04 071802Hvað eiga þessi þrjú atriði, sem hér eru nefnd í fyrirsögn, sameiginlegt?

Í fljótu bragði kann það að virðast vera fátt, en ekki er allt sem sýnist.

Kríuvarpið er sagt vera á Seltjarnarnesi og virðist þrífast þar vel, þrátt fyrir mikla byggð sem þar er risin og þó að byggðin hafi aukist mikið frá því sem áður var og að meira að segja golfvelli hafi verið komið þar fyrir.

Á myndinni í miðið, sem er klippa úr Morgunblaðinu líkt og sú fyrri, er greint frá því að skammt sé í að framkvæmdir geti hafist við frekari virkjanir í Þjórsá, en illa hefur gengið að ná því fram vegna andstöðu þeirra sem sjá fortíðina - án rafmagns og annarra nútímaþæginda, sem flestir aðrir kunna að meta -, í hillingum.

Reyndar eru þeir fyrrnefndu grunaðir um að blóta á laun og að þeir kveiki sín ljós, eldi sinn mat, hlaði sinn síma og bíla o.s.frv., en allt slíkt geta þeir, eftir að hafa tekið hina venjulegu nútíma tilveru út fyrir sviga.

Málinu er borgið eins og við sjáum, því til stendur að skipa ,,eftirlitsnefnd“ með framkvæmdunum sem fara þarf í til að virkja ána og vonandi uppfyllir nefndin kröfur umhverfisvæna fólksins og verður til þess, að allt gangi þetta fram með góðum hætti.

Við treystum því og trúum og vitum að allir munu njóta rafmagnsins þegar það kemur og ekki mun af veita, því notkunin eykst við hvern rafbíl sem þarf að hlaða og hvern nýjan íbúa sem til verður í samfélaginu vegna hins íslenska fjörs, en líka vegna þess að fólk frá öðrum löndum sækir til okkar vegna þess, að það hefur haft af því spurnir, að hér sé gott að búa þrátt fyrir íslenskan vetur með ófærð og öðru smávægilegu veseni, sem við látum umhverfisráðherra um að laga og bæta.

Myndirnar fyrrnefndu eru teknar úr Morgunblaðinu eins og áður var nefnt, en sú sem er lengst til hægri er úr safni bloggara og sýnir okkur ekki annað það, að vel er hægt að rækta skóg í landinu okkar góða, en verst er þó að komið hefur fram að, a.m.k. einn fyrrverandi framsóknarráðherra á í vandræðum með að sjá fjöllin vegna trjánna.

Við vonum innilega að það jafni sig, því við hin sjáum fjöllin ágætlega!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband