Samningar, korn og forysta

2023-05-13 (16)Í Bændablaðinu er forystugrein eftir formann Bændasamtakanna undir yfirskriftinni ,,Landbúnaður í fjármálaáætlun“, en þar er margvíslegt fleira efni sem vert er að kynna sér, svo sem grein um kornsamlög sem fyrirhuguð eru á Suðurlandi og í Borgarfirði og eins og við má búast eru líka til umfjöllunar svokallaðir ,,búvörusamningar“, sem þegar að er gáð, eru um sumar búvörur og aðrar ekki.

Í grein sinni segir Gunnar Þorgeirsson m.a.:

,,Haldnir hafa verið fjórir fundir um þau atriði sem fulltrúar bænda á búgreinaþingi samþykktu. Þar koma fram ýmis […] atriði sem nauðsynlegt er að laga […]. […] staðan [er] erfið og við þessa endurskoðun hafa fulltrúar í samninganefnd ríkisins […] enga heimild til að semja um aukna fjármuni inn í samningana […].“

Gunnar veltir því síðan fyrir sér hvernig hægt sé að tryggja hagsmuni bænda þegar vilji mótaðilans sé enginn og er þá bleik brugðið, þegar í ríkisstjórninni sitja hvorki meira né minna en fjórir ,,framsóknarflokkar“ hvað þessi málefni varðar.

Gunnar bendir þó á að 500 milljónir séu væntanlegar árlegar til eflingar kornframleiðslu, svo ekki eru bændur alveg vinalausir í ríkisstjórninni.

_ _ _

Í feitletraða textanum hér að neðan, sem er inngangur og síðan niðurlag fréttar í Bændablaðinu, kemur fram athyglisverð niðurstaða greiningar Önnu Kristínar Agnarsdóttur lögfræðings á búvörusamningunum:

,,Búvörusamningar geta ekki talist ígildi kjarasamnings og Bændasamtök Íslands geta ekki talist vera stéttarfélag búvöruframleiðenda, að mati Önnu Kristínar Agnarsdóttur lögfræðings, sem nýlega fjallaði um búvörusamninga í lokaritgerð sinni frá lagadeild Háskólans á Akureyri.“

Og: ,,Niðurstaðan er þó sú að samtökin geta ekki talist vera stéttarfélag í skilningi laga um stéttarfélög og vinnudeilur.“

Oft hefur svo virst, sem sauðfjár og kúabændur litu á sig sem launþega hjá ríkinu. Samkvæmt þessu er svo ekki og eru það allnokkrar fréttir, a.m.k. fyrir þá sem framar voru í upptalningunni!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband