Bjarni, Jón og séra Jón

2022-11-08 (3)Á blaðsíðunni ,,Skoðun" í Fréttablaðinu 8.11.2022 kennir fjögurra grasa, ef svo má segja.

Fyrst er þar að telja grein eftir ritstjórann Sigmund Erni Rúnarsson, þar sem hann fjallar um Landsfund Sjálfstæðisflokksins og niðurstöðu þeirrar samkomu.

Sigmundur minnir á að sitjandi formaður flokksins nýtur ekki nema 40% fylgis landsfundarfulltrúanna og skrifar:

,,Varla telst það vera meira en varnarsigur þegar í ljós kemur að sitjandi formaður Sjálfstæðisflokksins til rösklega þrettán ára reynist ekki njóta stuðnings 40 prósenta af forystumönnum flokksins á æðstu samkomu hans".

Sigmundur fer síðan yfir hvernig þessi hreyfing hægrimanna hafi verið að missa fylgi í Borgarstjórn og byggi tilveru sína í ríkisstjórn á að Vinstri grænir fari þar með forystu og haldi um taumana í ríkisstjórninni.

Eftirfarandi texti ritstjórans er nokkuð góð lýsing á stöðunni sem Sjálfstæðisflokkurinn er í:

,,Það er svo út af fyrir sig ein­stakt í sögu Sjálf­stæðis­flokksins að nú­verandi for­maður hans hafi ekki setið nema ellefu mánuði á stóli for­sætis­ráð­herra í allan þennan tíma – bráðum í hálfan annan ára­tug – og er lík­lega eini for­sætis­ráð­herrann í sögu þjóðarinnar sem ekki hefur náð að flytja þjóðinni ára­móta­á­varp sitt á valda­stóli. Þetta er al­ger­lega úr takti við alla fyrir­rennara hans sem gengu svo að segja að því vísu að taka við valda­taumunum og leiða ríkis­stjórnir eftir hverjar kosningarnar af öðrum."

Framsóknarflokkurinn kemur ekki við sögu í greininni, enda enginn landsfundur á þeim bæ til umræðu og verður trúlega ekki talinn umræðuverður þegar hann verður haldinn. Líklegt er samt að hann verði haldinn einhvern tíma, því til þess eru hrútarnir skornir á þeim bæ, að menn hittist og jarmi sig saman.

Mynd Sigmundar teiknara, sem er til hægri við grein Sigmundar ritstjóra á síðunni, þar sem greina má Bjarna formann við alkunnar matreiðslukúnstir (sem undirritaður hélt reyndar að væru bundnar við kökugerð!) undirstrikar stöðu Flokksins þess sem einu sinni var með stóru effi.

Neðarlega og til hægri (hvað annað!) er svo grein eftir þær stöllurnar Katrínu Jakobsdóttur og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, þar sem þær segja frá því að:

,,Í gær tilkynntu ríkisstjórnir Írlands og Íslands á fundi í Strassborg að það kæmi í hlut Íslands að efna til leiðtogafundar Evrópuráðsins í Reykjavík í maí 2023, í lok formennskunnar. Í tæplega 75 ára sögu ráðsins hefur aðeins þrívegis verið haldinn leiðtogafundur. Innrásin í Úkraínu verður þar í brennidepli og í samhengi hennar mikilvægi þess að aðildarríkin verji sameiginleg gildi stofnunarinnar. Fundurinn verður umfangsmesti alþjóðlegi fundur sem fram hefur farið á Íslandi."

Síðar segja þær að veturinn komi til með að verða erfiður vegna ,,innrásar Rússlands í Úkraínu" og verður ritara þá hugsað til þess hvernig ríkisstjórnin sem þær stöllur sitja í, hefur tekið á málum fólks sem er á flótta, undan styrjöldum í Úkraínu og öðrum löndum.

Við höfum getað fylgst með því hvernig fólk hefur verið flutt úr landi með mikilli fyrirhöfn og kostnaði - sem komast hefði mátt hjá - og séð viðtal við rússneskt par sem er í ónáð í landi sínu en kunnugt Íslandi og datt því í hug að þar væri hægt að fá að vera.

Bandaríkjamaður sem unnið hafði sér heimsmeistaratitil í skák, en fallið í ónáð í landi sínu af einhverjum dularfullum ástæðum, var sóttur til Japan og veittur íslenskur ríkisborgararéttur með hröðum hætti.

Úkraínar sem flýja átökin í landi sínu fá hér vist bæði hratt og örugglega svo sem vert er.

En rússneskt par sem fallið er í ónáð í landi sínu og er kunnugt Íslandi fær ekki að vera þar! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband