4.6.2022 | 09:46
Hani, krummi, hundur, svín og allt hitt.
Landbúnaðurinn er ofarlega á blaði í Morgunblaði dagsins fjórða júní árið 2022.
Steingrímur Sigfússon er dreginn upp á svið til að leysa vandann sem skapast hefur vegna hækkandi verðs á aðföngum til framleiðslu landbúnaðarvara.
Stofnaður hefur verið ,,Spretthópur" sem hann á að stýra í mark og sé textinn lesinn, þá er landbúnaður: sauðfjárrækt og kúabúskapur.
Hækkanir á áburði, kornvöru, olíu og öðrum rekstrarvörum koma samkvæmt þessu ekki við pyngju annarra en þeirra bænda sem þessar búgreinar stunda, að mati ráðherrans sem skipaði spretthópinn.
Það væru mikil og góð tíðindi ef sönn væru. En það eru þau vitanlega ekki. Allar landbúnaðargreinarnar eru undir í þessu máli og vonandi átta spretthlaupararnir sig á því.
Þó ekki sé rétt að búast við að svo sé, sé tekið mið af viðhorfum flokkanna þriggja sem ríkisstjórnina mynda til málaflokksins.
Ekki reiknum við með því, að þau sem í ríkisstjórninni sprettast séu svo fjarri raunveruleikanum að þau telji, að þegar áburður, olía, varahlutir og allt hvað heiti hefur hækkar í verði, að þá hækki ekki framleiðslukostnaður annarra landbúnaðarafurða en sauðfjár og kúa.
Er fólkið í ríkisstjórninni svo aftarlega á merinni að það sé nær alveg öruggt: að nefndarfólkið í Spretthópnum renni aftur af gripnum þegar slegið verður í og spretturinn tekinn?
Sé svo, er þá ekki réttast að athuga málið betur áður en slegið verður í klárinn? Snúa við og fara frá rásmarkinu og byrja að nýju?
Við gerum ráð fyrir að ráðherrann hafi örlitla tengingu við landbúnað, en samt ekki næga og þurfi því leiðbeiningar.
Mðað við grein sem birtist í Morgunblaðinu eftir framkvæmdastjóra Bændasamtakanna ætti ráðherrann að geta fengið slíka leiðsögn. Greinin er eftir Vigdísi Häsler og í yfirskrift segir: Ísland verður að tryggja sig með því að auka birgðahald af fóðurhráefnum í landinu með því að eiga stærri varalager líkt og Norðmenn og Finnar.
Á þetta hefur áður verið bent og er ritara þessara lína minnistætt þegar mætur maður ræddi málið við hann eftir fund í Bændahöllinni og benti á þessa staðreynd, varðandi Finnland.
Við sjáum að Vigdís nefnir Noreg líka til sögunnar og segir í grein sinni: ,,Hinn 18. mars sl. skipaði forsætisráðherra starfshóp um nauðsynlegar birgðir til þess að tryggja lífsafkomu þjóðar á hættutímum. Starfshópurinn sem er enn að störfum, m.a. vegna þess að beðið var niðurstöðunnar frá LBHÍ, vinnur að gerð áætlunar um söfnun upplýsinga um birgðastöðu á hverjum tíma, leiðir til að bregðast við óásættanlegri birgðastöðu, skömmtun og stýringu á úthlutun mikilvægra birgða og tryggja þar með nauðsynlega birgðastöðu með hliðsjón m.a. af samstarfi innflytjenda og framleiðenda á vörum sem teljast nauðsynlegar. Starfshópnum er því ætlað að áhættugreina fæðuöryggi þjóðarinnar út frá langtímaáhrifum en ekki bregðast við stöðunni eins og hún er núna.
Og síðan: ,,[ ] erfitt að fá upplýsingar um magn áburðar eða fóðurs fyrir búfé hér á landi." Og spyr síðan: ,,Og eigum við nægar birgðir af olíu til lengri tíma en 90 daga?
Hún nefnir líka að við höfum ekki upplýsingar um hvað til er í landinu af áburði, korni og kjarnfóðri og eins og við mörg vitum eru þessar vörur notaðar til landbúnaðarframleiðslu auk margs annars og gleymum ekki olíunni.
...
Og svo stolið sé svolitlu meiru úr hinni ágætu grein Vigdísar Häsler, þá er það margt fleira en föstudagspitsan sem gæti verið gott að huga að.
Hér í lokin skal minnt á það, að betra er að klárinn sé vel girtur þegar sprettur ,,Spretthóps ráðherranns verður tekinn og ekki verra að skepnan sé a.m.k. bandvön og sæmilega járnuð.
Höfum í huga að þó hrossið geti verið fengið úr íslenskri hjörð, þá þarf æði margt innflutt til að skepnan sé reiðfær, s.s. skeifur, fjaðrir, leður, ístöð, beisli og mél og eflaust gleymist eitthvað í þessari upptalningu!
Landbúnaður er fjölbreyttur og svo sannarlega margt fleira en kindur og kýr! (Myndir eru fengnar úr Morgunblaðinu)
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.