7.3.2022 | 11:38
Nasistar í Úkraínu?
Í grein í vefritinu Kjarnanum undir yfirskriftinni Öfgahægrivandinn ekki meiri í Úkraínu en í nágrannaríkjunum, er farið yfir ásakanir sem fram hafa komið, um að í Úkraínu vaði uppi nasistahópar, og að þeir séu meira að segja vopnaðir og hafi tekið þátt í baráttunni í austurhéruðunum þ.e. Donbass og Lughans.
Ekki er hægt að halda því fram að í greininni sé komist að ,,hreinni" niðurstöðu varðandi málið.
Forseti Úkraínu segir sem svo, hvernig get ég verið nasisti maður sem kosinn er í lýðræðislegri kosningu, er gyðingur og átti afa sem barðist með rauða hernum, eða eins og segir í greininni: ,,Volodímír Zelenskí forseti Úkraínu hefur brugðist við þessum nasistaávirðingum frá stjórnvöldum í Kreml[in] með nokkru háði og bent á að hann sjálfur, lýðræðislega kjörinn forseti landsins, sé gyðingur.
Hvernig gæti ég verið nasisti? sagði hann í ávarpi á dögunum og vísaði til þess að afi sinni hefði barist með Rauða hernum gegn þýskum nasistum á tímum seinni heimsstyrjaldar."
Ekki veit undirritaður hvort útilokað er, að maður með þennan bakgrunn geti verið eða geti orðið nasisti, þó það verði að teljast frekar ólíklegt.
Í grein Kjarnans segir síðan: ,,Átökin sem hafa geisað í austurhluta Úkraínu allt frá árinu 2014 hafa til dæmis orðið vatn á myllu hóps sem kallar sig Azov-hreyfinguna."
Og síðan: ,,Þessi hópur [Azov] sjálfboðaliða, sem telur nokkur þúsund manns, hefur barist gegn rússneskum aðskilnaðarsinnum í Dónetsk og Lúgansk héruðum á undanförnum árum, í samvinnu við sveitir úkraínska stjórnarhersins. Hernaðararmur Azov-hreyfingarinnar varð við upphaf átakanna í reynd formlegur hluti úkraínska þjóðvarðliðsins, sem var mjög svo veikburða er átökin í Donbass hófust."
Hópurinn sem barðist gegn aðskilnaðarsinnunum, hernaðararmur Azov hreyfingarinnar, barðist sem sagt með úkraínska stjórnarhernum í Donetsk og Luhansk!
Við höfum heyrt þetta áður, en þá frá rússneska forsetanum og öðrum talsmönnum rússneskra stjórnvalda!
Síðan segir í greininni: ,,Fréttaritari BBC í Kænugarði sagði í pistli árið 2014 að úkraínsk stjórnvöld gerðu minna úr hlutverki Azov-hreyfingarinnar í hernaðinum í Donbass en efni stæðu til og að þau reyndu að komast hjá því að tala opinberlega um stórt hlutverk þessa öfgahóps, sem reynst hafði mikilvægur hlekkur í baráttunni gegn rússneskum aðskilnaðarsinnum í austurhéruðunum. Fæstir Úkraínumenn hefðu heyrt um að það væru menn sem kenndu sig við öfgaþjóðernishyggju og jafnvel nasisma að berjast fyrir hönd landsins á víglínunum í austri."
Í textanum sem hér er undirstrikaður af undirrituðum, kemur sem sagt fram að fæstir landsmenn hafi gert sér grein fyrir að mannskapur af þessu tagi væri að berjast austur þar.
Seinna segir í umfjölluninni í Kjarnanum: ,,Tilvist einhverra yfirlýstra nýnasista innan þjóðvarðliðs Úkraínu hefur því ekki verið neitt leyndarmál."
Í greininni segir að fjallað hafi verið um þessi mál í ,,grein sem birtist í breska tímaritinu New Statesman." Þar mun vera sagt, að herskáir hægriöfgamenn í Úkraínu hafa notið ,,frjálsræðis undir verndarvæng þarlendra stjórnvalda. Frjálsræðis, sem jafnvel hafi verið öfundsvert í augum öfgahreyfinga af svipuðum meiði annarsstaðar í heiminum."
Greininni í Kjarnanum lýkur með því að dregin er sú ályktun að ekkert af þessu réttlæti innrás Rússa í Úkraínu og vel getur verið að það sé rétt.
Hitt er jafnvíst að rússnesk stjórnvöld hafa komist að annarri niðurstöðu, niðurstöðu sem þau hafa ekki verið sérstaklega dugleg við að rökstyðja, svo ekki sé meira sagt.
Grein Kjarnans ætti að auðvelda þeim málið!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.