15.2.2021 | 09:19
Listar tveggja flokka
Framboðslistar tveggja flokka eru teknir til umfjöllunar í tveimur fréttaskýringum í Morgunblaðinu 15/2/2021.
Listarnir eru annarsvegar listar sjálfstæðismanna og hins vegar listar Samfylkingarinnar og blaðamaðurinn sem um fjallar er Andrés Magnússon. Andrés tekur til umfjöllunar framboðsmál Sjálfstæðismanna með eftirfarandi hætti: ,,[...] Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hyggst sækjast eftir efsta sæti í sameiginlegu prófkjöri höfuðborgarkjördæmanna, þar sem Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra er fyrir."
Næst er tekið fyrir Norðvesturkjördæmi og þar er en meira fjör, því Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra, sækist eftir fyrsta sætinu og mun þá taka það ,,af" fyrrverandi formanni Bændasamtakanna og núverandi þingmanni Haraldi Benediktssyni.
Þórdís hefur vakið athygli fyrir glæsilega framgöngu í ráðherrastarfinu, sköruglegan og skýran málflutning og gera má ráð fyrir að mörgum sjálfstæðismanninum þætti fengur í að fá hana í oddvitasætið.
Suðurkjördæmi kemur til umfjöllunar í fréttaskýringunni og þar eiga sjálfstæðismenn góðan kost þar sem er Guðrún Hafsteinsdóttir iðnrekandi í Hveragerði.
Gera má ráð fyrir að mörgum sjálfstæðismanninum þykji gott að fá hana í fyrsta sæti lista flokksins í kjördæminu.
Næst tekur blaðamaðurinn fyrir framboð Samfylkingarinnar á höfuðborgarsvæðinu og greinir frá því að listar hafi verið samþykktir með yfirgnæfandi fjölda atkvæða. Þar eru það Helga Vala Helgadóttir og Sigrún Flosadóttir hagfræðingur, sem leiða munu listana og ættu flestir að geta verið ánægðir með það val.
Viðhorf blaðamannsins til flokksins sem hann er að fjalla um birtist líklega í eftirfarandi texta: ,,Ef flokkurinn er bæði að færast til vinstri og í pópúlískar áttir, þá verður auðvitað fróðlegt að fylgjast með því hvernig Kristrún Flosadóttir semur sig að því, hún er ekki sama sinnis og var gagngert sótt til þess að einhver í þingflokknum kynni prósentureikning."
Óhætt er að segja að hér hafi pólitískar skoðanir höfuðsins sigrað hendur og fingur á lyklaborðinu, því varla gerir blaðamaðurinn ráð fyrir að svo sé komið fyrir þingflokki Samfylkingarinnar að ekki finnist þar fólk sem ræður við prósentureikning!
Ýmislegt má segja um þingmenn, en að ætla þeim það að þeir kunni ekki einföldustu tök á reiknikúnstum viðskiptareiknings er frekar hæpið og ómaklegt. Við gerum ráð fyrir að þeir ráði við þann stærðfræðianga hvar í flokki sem þeir eru. Myndirnar eru úr Morgunblaðinu.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.