22.3.2012 | 23:24
Virkjanir í Þjórsá
Grein sem birtist á Visir.is og í Sunnlenska fréttablaðinu í vikunni:
Það var stórt skref í sögu mannkynsins þegar því tókst að beisla eldinn og hefur þeim sem það gerðu tæplega órað fyrir hve stórt skref var þar með búið að stíga til framþróunar. Sama má segja um þegar mönnum tókst í fyrsta sinn að virkja orku rennandi vatns, hvort heldur sem var til að framkvæma vinnu, eða til að hafa stjórn á hvernig það rynni um jörðina sem þeir voru að yrkja. Þannig hefur það alla tíð verið, frá því maðurinn náði þeim áfanga að smíða sér fyrstu verkfærin, að eitt hefur rekið annað á framfarabraut: Orka beisluð hvort sem fólst í rennandi vatni, blæstri vindanna eða skini sólarinnar, en þaðan er vitanlega öll sú orka komin sem beisluð hefur verið, þó að í fyrstu blasi það ekki alltaf við.
Margt hefur vitanlega breyst síðan mannskepnan steig sín fyrstu skref í átt til þeirra framfara sem hér var lýst og víst hefur margt af því sem við mennirnir höfum tekið okkur fyrir hendur ekki verið mjög gæfulegt, skoðað í ljósi sögunnar. Beislun orku hefur ekki alltaf verið til góðs og þarf ekki annað en leiða hugann að nokkrum undangengnum styrjöldum til að sannfærast um það, en hinu er ekki hægt að neita að margt hefur líka vel til tekist og æðimörg er sú orkuvinnsla sem bæði er til góðs og framfara. Sú var tíð að Reykjavík var hituð, fyrst með kolum, mó og öðru því sem til féll, eða þar til olían tók við áður en hitaveitan kom til sögunnar. Ótrúlega stutt er síðan hús í höfuðborginni voru kynt með olíu nær alfarið - og enn styttra er síðan því var hætt, að koma fyrir olíukatli í nýjum húsum til upphitunar þar til hitaveitan gæti síðan tekið við.
Nú virðist svo komið, að nokkuð stórum hluta landsmanna finnist það sjálfgefið að búa við mengunarlausa orku í formi jarðhita og frá virkjunum í fallvötnum. En er það svo? Til að koma þessu svo fyrir hefur ýmislegt þurft til að koma, s.s. hugvit, verkþekking og ekki síst framsýni og geta til að hrinda hlutunum í framkvæmd. Nú er hins vegar svo að sjá, að hluti þjóðarinnar telji þetta allt svo sjálfsagt, að nú sé hægt að setjast í helgan stein og hafa það náðugt og viðhorfið er oftast klætt í þann búning, að um áhuga fyrir ,,óspilltri náttúru landsins sé að ræða. Sá áhugi er því miður nokkuð seint til sögunnar kominn, því ekki er mjög mikið eftir af óspilltri náttúru, en um það er hins vegar ekki deilt, að þar sem hún finnst, er vitanlega sjálfsagt og eðlilegt að fara varlega og gæta þess að spilla henni ekki að óþörfu.
Ef marka má fréttir, þá mun standa til að framlengja líf núverandi ríkisstjórnar, með því að falla frá áformum um fyrirhugaðar virkjanir í neðri hluta Þjórsár. Um er að ræða þrjár til fjórar virkjanir eftir því hvernig talið er. Þrjár í neðri hluta árinnar að viðbættri einni miðlun sem auka mun afköst allra virkjananna. Um er að ræða einhverja hagstæðustu virkjanakosti sem völ er á, neikvæð umhverfisáhrif eru hverfandi og miðlanir fyrri virkjana koma til með að nýtast hinum nýju. Ákvörðun um að falla frá þessum virkjunum gleður vafalaust umhverfisverndarsinna, en er um leið enn eitt dapurlegt dæmið um hve langt menn geta gengið til að ná fram kröfum sínum.
Formaður Vinstri grænna, Steingrímur J. Sigfússon, lýsti á sínum tíma yfir hrifningu sinni á umræddum virkjunum og taldi þær góðan kost. Þar hafði hann vitanlega rétt fyrir sér, en það hafði hann hins vegar ekki þegar hann gaf gufuaflsvirkjunum til raforkuframleiðslu góða einkunn, því eins og alþjóð veit fylgir þeim mengun sem barist er við og að auki er nýting orkunnar afar lítil.
Fyrirhugaðar virkjanir eru einn hagkvæmasti virkjunarkostur sem í boði er, ekki síst vegna aukinnar nýtingar á vatnsmiðluninni í ánni. Virkjanirnar koma ekki til með að valda umhverfisspjöllum sem neinu nemur og gera í raun ekki annað en nýta enn betur rennsli árinnar sem að öðrum kosti fer, engum til gagns, óbeislað til sjávar.
Umhverfisverndarsinnar hafa það að markmiði að helst ekkert verði virkjað, náttúran skuli njóti vafans (eins og þeir kalla það) og til frekari útskýringar á afstöðu sinni, skýla þeir sér bakvið, að allt sé þetta nú gert fyrir komandi kynslóðir. Sér til stuðnings hafa þeir fengið ýmsa utan úr heimi til að leggja málstaðnum lið, m. a. með óspektum á virkjanasvæðunum. Kalla þeir sig ,,aðgerðasinna og tilgangurinn mun eiga að helga meðalið.
Gera má því skóna að er tímar líða og komandi kynslóðir líta til baka, muni þeim þykja afstaða svokallaðra verndunarsinna í besta falli brosleg er þeir taka til við að hrinda í framkvæmd því sjálfsagða, þ.e. að nýta orku árinnar og að þá muni verði litið með eftirsjá til þess tekjutaps sem þjóðarbúið hafi orðið fyrir vegna kyrrstöðunnar.
Nema sú undarlega staða komi upp, að orka verði einskis virði og þar af leiðandi ekkert við hana að gera. Flestum þykir það væntanlega ósennileg uppákoma og mun líklegra er að eftirspurn eftir umhverfisvænni, endurnýjanlegri orku fari vaxandi um ókomna tíð.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ok...!
Þetta er mjög háleit og dramatísk grein... Og dáldið sérstök vegna þess að þar er því að jöfnu lagt beislun eldsins og virkjun vatnsafla fyrir sjálft mannkynið...?!?
Jæja,þér má finnast það fyrir mér...
En eitt get ég sagt þér sem uppalinn sunnlendingur... Það er til einskins gert að virkja endalaust á Suðurlandi til þess enn eina ferðina flytja orkuna útúr byggðalaginu vegna þess að frekjuhundunum á Suðurnesjunum, eða einhversstaðar annarsstaðar, datt í hug að búa sér til enn eitt álverið...!
Það er nóg komið af virkjunum á Suðurlandi fyrir þessa aumingja þarna suður með sjó... Það er fyrir löngu kominn tími á að nota þá orku sem skapast á Suðurlandi til atvinnuuppbyggingar á Suðurlandinu sjálfu, og hætta að flytja hana landshluta á milli fyrir einhverja AULA sem kunna ekkert hvort eð er að fara með peninga...
-
Og þú sem ert bóndi... Skalt ekki voga þér að koma með einhverja svona ástæðuna, eða afsökunina, um að við erum nú öll Íslendingar og ættum að sýna félögum okkar í atvinnuleysinu útá nesi samhug í verki og svoleiðis heimskulegu vitleysuna...!
Því þá ertu engu betri en Ágúst gamli á Brúnastöðum sem stóð fyrir því á sínum tíma að Undanrennu-musterið í Reykjavík var reist af MS... Með orðunum að...
"Fyrst Reykvíkingar drekka mjólkina, þá er alltílagi að þeir framleiði úr henni líka..."
Þar með sveik Ágúst kjósendur sína á Suðurlandi og aðra bændur, nágranna sína í fjórðungnum... Í raun sveik hann allt og alla með þessu "viskustykki" sínu... Því að hann flutti með þessu atvinnuna burt úr héraðinu...
Enda var honum svosum skítsama... Hann var rollubóndi og hugsaði bara um sjálfan sig...
Já, það hefur margt gáfumennið komið frá þessum Brúnastöðum...!
Sævar Óli Helgason, 23.3.2012 kl. 00:16
Heyr, heyr, Ingimundur.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.3.2012 kl. 07:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.