Ekkert að óttast

Maður bregður sér frá í nokkra daga í ferð með Bændaferðum og að því loknu, kíkir á fréttir miðlanna og kemst þá að því, að ýmislegt er og hefur verið að gerast.

Þar er fyrst til að taka, að Zelensky brá sér í fataskápinn, fann þar Skjámynd 2024-09-28 155803jakkaföt sem hann fór í til að hitta vin sinn Trump.

Í annarri frétt sást hann vera að spjalla við Biden en þá var hann í peysunni sinni góðu!

Takið eftir skónum! Maður, maður, gljáburstaðir og sem keyptir séu í París!

En við höldum okkur við alvöruna og komumst að því að nú á almenningur, að sjá til þess að unga fólkið geti fengið sér áhyggjulaust do-do á kostnað skattborgaranna en í boði Framsóknarflokksins og þar með alþjóðar.

2024-09-28 (3)Telst það vart til tíðinda, að flokkur almennra niðurgreiðslna á vel völdum nauðsynjum hafi gott auga fyrir því hvar borið skuli niður í því efni.

Aftur að Zelensky, því hann hefur komið við víðar og nú er það hinn vinurinn Biden sem sóttur er heim og þá er farið í Skjámynd 2024-09-16 062458peysuna góðu og settar upp grátviprur, sem Biden sér og gerir sitt til að fjarlægja.

En að öðru:

Formaður Framsóknarflokksins er myndefni Gunnars í Heimildinni.

Við sjáum hver er í bandi og með stýrivextina um hálsinn og enn er það unga fólkið sem er á vörum Framsóknar:

Allt er í besta lagi því ,,hann“ bítur bara ungafólkið!

2024-09-28 (7)Á myndinni til hægri, er sem það eigi að vera Putin sem sé með kökukeflið á lofti, tilbúinn til að rota hænuna, sem ætlar í vesöld sinni að breyta yfir í ,,verðtryggt“ en þegar að er gáð, þá er það ekki Rússlandsforseti sem heldur á kökukeflinu, heldur aðeins íslenskt fjármálagúrú!

Svona líta þá málin út á fyrsta degi innrásar gamlingjanna til föðurlandsins og móður náttúrulega, þó það gleymist nær alltaf!

Við vonum að Eyjólfur haldi áfram að vera hress og færandi!


Bloggfærslur 28. september 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband