Þegar byggja skal brú

Þegar til stendur að byggja brú yfir Ölfusá ofan við Selfoss stígur fram fyrrverandi ráðherra Sjálfsstæðisflokksins, sem telur sig hafa gott vit á brúarsmíði og niðurstaða hans er, að þjóðin hafi ekki efni á að byggja umrædda brú.

Það er trúlega betra að hlusta á þessar skoðanir, að teknu tilliti til, hve gætilega farið hefur verið með fé þjóðarinnar af flokkunum sem hafa setið að völdum síðustu árin!

Frá þessu er sagt í Vísi og enginn ætti að efast um hæfileika ráðherrans fyrrverandi, til að kveða upp dóm af þessu tagi!

Myndirnar sem hér eru fylgdu fréttinni í visir.is og sýna brúna sem til Skjámynd 2024-10-04 094007stendur að smíða frá tveimur sjónarhornum sem og ráðherrann fyrrverandi.

Ekki kemur fram í fréttinni hversu kunnugur hinn fyrrverandi ráðherra er aðstæðum en hvað sem því líður, þá telur hann sig hafa þekkingu á málinu og trúlega hefur hann bætt við sig þekkingu í burðarþolsfræði eftir að æviágripið á vef Alþingis var tekið saman og það sama má segja um félaga hans á þingi sem er ráðherra fjármála nú um stundir.

Sá hefur ásamt fleirum, tjáð sig um brúna sem fyrirhuguðu er og er ekkert sérlega ánægður með hugmyndina.

Á visir.is var rætt við Guðmund Val Guðmundsson framkvæmdastjóra hjá Vegagerðinni en hann sér enga meinbugi á að byggja brúna og vísar orðum Jóns á bug, eða eins og segir á Vísi:

,,vísar [hann} gagnrýni fyrrverandi Samgönguráðherra á fyrirhugaða Ölfusársbrú á bug, og segir Vegagerðina í stellingum til að hefja verkið. Boltinn sé nú hjá ráðherrum ríkisstjórnarinnar."

,,Boltinn er sem sagt hjá ráðherrunum", mönnum sem hafa dandalast um heiminn flestir ef ekki allir og hafa greinilega verið sofandi þegar ekið hefur verið yfir vatnsföll sem brúuð eru með svipuðum mannvirkjum og því sem til stendur að byggja yfir Ölfusá.

Af þessu má draga þá ályktun að því minni þekkingu sem menn hafa á verkefninu, því yfirlýsingaglaðari séu þeir og því til sönnunar má geta þess að bæjarstjóri Þorlákshafnar bættist í hóp úrtölumannanna og klykkti út með að benda á sem æskilega lausn, að breikka mætti veginn til Þorlákshafnar, þann sem liggur um Þrengsli og láta síðan umferðina austur um fara þar!

Þ.e.a.s. að þeir sem ætluðu austur í Ölfus færu þá væntanlega upp veginn frá Þorlákshöfn og í Ölfusið en hinir eiga samkvæmt þessu, að aka um Eyrarbakka og fyrir neðan Selfoss!

Ekki komu fram útreikningar á auknum kostnaði vegfarenda af því að fara þessa leið en af þessu má ráða að svokölluð ,,hjáspeki" lifir góðu lífi í samfélaginu og teygir sig ekkert síður til þeirra sem í ábyrgðarstöðum eru.

Takist mönnum að gelda málið líkt og reynt er með flugvallarmálið, þá hafa þeir alla vega unnið sér eitthvað til frægðar.

Varðandi flugvallarmálið er rétt að benda á að Dagur B. Eggertsson birti málefnalega yfirferð um það á Facebook síðu sinni, þar sem menn geta kynnt sér um hvað er verið að ræða, án upphrópana og pólitískra hjáraka.

Það ætti flestum að vera ljóst, fyrrverandi ráðherrum líka, að flutningsgetu gömlu brúarinnar við Selfoss er löngu ofboðið, auk þess sem umferðarþunginn í gegnum bæinn er slíkur á álagstímum að illt er við að búa, bæði fyrir þau sem þar eiga heima, sem og þau, sem eru með atvinnurekstur á staðnum, sem vitanlega fer oft saman.

Sumir hafa gripið til þess ráðs að aka Þorlákshafnarveginn til austurs og yfir á Gaulverjabæjarveg fyrir neðan byggðina á Selfossi og losnað þannig við umferðarstífluna sem er við núverandi brú á Selfossi.

Sú leið er vissulega talsvert lengri en er í raun oft betri en að lenda í umferðarhnútnum, sem er vestan brúarinnar við Selfoss, en að það geti talist framtíðarlausn að fara þá leið er vissulega fráleitt og væri fróðlegt ef einhverjir myndu reikna það dæmi til enda og taka þá með uppsafnaðan kostnað af lengri akstri allra þeirra sem á milli landshlutanna þurfa að fara.

Finnist þeim að Þorlákshöfn sé eitthvað afskekkt, þá er rétt að benda þeim á að hún er þar sem hún hefur alltaf verið og hefur líklega aldrei blómstrað betur en síðustu árin.

Þar hefur höfnin stórbatnað og auk hafnaraðstöðu fyrir fiskiskip o.fl. eru stundaðar millilandasiglingar þangað og þaðan og ekki vitað annað en að það gangi vel, auk þess sem samgöngur til Vestmannaeyja fara þar um þegar ekki er fært um Landeyjahöfn.

Það má síðan geta þess í lok þessa pistils að fjármálaráðherrann núverandi, hefur komið fram með hugmyndir um að bora göng til Vestmannaeyja, með glænýrri tækni sem fáir skilja en marga langar til að vita hvernig kemur til með að virka í raunheimum.

Ef rétt er munað, er þar um að ræða undrabor mikinn sem bræðir sig í gegnum bergið og gengur fyrir raforku umhverfisvænum til örfunar og er í flesta staði sem klipptur út úr ævintýri í vísindaskáldsögu.

Lítið hefur heyrst um þetta um tíma en líklega er málið í vinnslu og fyrst ráðherranum hugnast ekki brú yfir Ölfusá, væri þá ekki rétt að hafa samband við draumaprinsinn sem kann bortæknina nútímalegu og biðja hann að bora göng undir Ölfusá?

Tækist það bæði fljótt og vel og án oflestunar rafkerfisins veikbyggða, þá þyrftu þeir, sem ekki þola brýr yfir vatnsföll, ekki að ergja sig á að horfa á mannvirki þeirrar gerðar sem finna má vítt um heim.

Það er að segja, ef þeir halda sig á heimaslóðum, sér og sínum til ánægju og tilbreytingar.


Bloggfærslur 6. október 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband