Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
9.11.2024 | 07:00
Eytt sparað og barist
Stjórnendur Reykjavíkurborgar stefna á að tekjuafgangur á næsta ári verði 1,7 milljarður.
Það er nánast á pari við það sem ríkisstjórnin færði forseta Úkraínu að gjöf, eftir að hafa boðið honum á þing Norðurlandanna.
Og það vantar a.m.k. milljarð í rekstur Landhelgisgæslunnar, milljarð sem ekki liggur á lausu.
Ekki hefur ritari séð hve margir hundar og kettir hafa verið fluttir til landsins frá Úkraínu en fram hefur komið, að kostnaður við hvert gæludýr, sem fólkið sem flýr stríðið tekur með sér, kosti íslensku þjóðina 3 milljónir íslenskar auk þes sem það mun kosta um 7 milljónir að taka á móti hverjum flóttamanni.
Ríkissjóður Íslands er rekinn með halla sem meðal annars stafar af fjáraustri í stríðsrekstur, sem íslensku þjóðinni kemur ekki við, nema ef hún myndi manna sig upp í að reyna að stilla til friðar.
Ganga á milli og reyna að bera klæði á vopnin, hvort sem er á milli Ísraela og Palestínumanna, eða Úkraínu og Rússlands.
Þess í stað var farið í barnalega fýlu út í Rússland, sem líkist því þegar börn snúa sér undan og segja ,,ég vil ekki tala við þig"!
Væri dugur og mannsbragur á hópnum sem landinu stjórnar, hefðu menn kynnt sér málin, rekið utanrikisráðherrann, ráðið nýjan og farið í að reyna að miðla málum.
Það hefur verið tregða í ríkisstjórnarnefnunni, á að styðja við flóttafólk sem vill komast á brott frá helför Ísraela.
Helför af öðru tagi en því, sem við munum frá seinni heimstyrjöldinni og er, ef eitthvað er, sýnu verri og viðbjóðslegri en sú sem þá var.
Þá voru það gyðingar sem urðu fyrir ofsóknum sturlaðra manna sem vildu útrýma þeim.
Á endanum tókst að stöðva þann óhugnað, sigra nasista og stöðva helförina - þar áttu Rússar stóran hlut að máli - en nú eru það afkomendur þeirra sem ofsóttir voru þá, sem sprengja fólk í tætlur og drápin bitna jafnt á konum, börnum og körlum, svo samjöfnuðurinn er óhugnanlega sambærilegur.
Nema að það er ef til vill ,,hreinlegra" að drepa fólk með markvissum hætti í þar til gerðum aftökustöðvum en að kasta á það sprengjum, sem ýmist deyða eða limlesta.
Þau sem sleppa lifandi eru löskuð bæði á líkama og sál og oftast hvort tveggja.
Enginn sendiherra hefur verið sendur til síns heima vegna þessa af íslenskri ríkisstjórn og enginn á von á að það verði gert, því undirlægjuhátturinn gagnvart stórveldinu sem í raun rekur hernaðinn í Palestínu, er slíku að það kemur ekki til greina.
Skömmin er ómæld.
6.11.2024 | 09:23
Ríkið styrkir fjölmiðla
Við munum þá tíma þegar fjölmiðlar voru í fjárhagslegu basli og þurftu að hafa allar klær úti til að geta haldið sér á floti.
Nú er komin önnur tíð með blóm í haga og menn þurfa ekki að hafa eins mikið fyrir því að afla sér tekna til að geta t.d. borgað starfsfólki, þó ekki sé nema einhver laun.
Launin voru ekki alltaf greidd áður fyrr samkvæmt taxta og það gat orðið bið eftir greiðslum og því var lifað sparlega og reynt að fara vel með.
Oft var um að ræða hugsjónastarf, sem menn fórnuðu sér og sýnum fyrir og kröfurnar sem gerðar voru, fólust fyrst og fremst í því að koma t.d. ,,blaðinu út, fá sem flesta áskrifendur og helst eitthvað af auglýsingum og síðast en ekki síst styrki frá vildarvinum.
Allt þetta þurfti að rukka inn og það var barist í bökkum en fólk lagði mikið á sig til að geta komið t.d. málgagninu út.
Nú eru aðrir tímar með blóm í haga og í Viðskiptablaðinu er frétt sem vakið hefur athygli ritara.
Þar er þann 5. nóvember 2024 sagt frá því að úthlutað hafi verið styrkjum til fjölmiðla samtals að upphæð um 550 milljónum króna.
Sagt er frá því, að úthlutað hafi verið tæplega 551 milljón, eða eins og segir í inngangi fréttarinnar:
Til úthlutunar voru 557,2 milljónir kr. að frádregnum kostnaði vegna umsýslu, sérfræðiaðstoðar, auglýsinga, þóknunar fyrir störf úthlutunarnefndar o.fl. sem var um 1,1% af heildarfjárhæð eða 6.298.068 kr.
Til úthlutunar voru því 550.901.932 kr. Hér verður einungis getið þeirra sem fengu hæstu styrkina en í frétt miðilsins, sem hægt er að nálgast á tenglinum hér að ofan er taflan öll eins og hún birtist í blaðinu. Þeir sem hæstu styrkina fá samkvæmt fréttinni eru: Árvakur og Sýn með styrki á annað hundrað milljónir og síðan koma: Bændatorgið, Fjölmiðlatorgið, Fröken ehf., Myllusetur ehf., Sameinaða útgáfufélagið ehf., Skessuhorn, Sólartún og Víkurfréttir með á annan tug milljóna.
Aðrir fá minna samkvæmt fréttinni og ef rétt er talið bætast 17 aðilar við sem fá styrki sem eru innan við tug milljóna.
Samfélagið hefur sannarlega breyst frá því sem áður var og þetta er aðeins eitt dæmi um það en hvort rétt er gefið á þessa jötu, er ritari ekki fær um að dæma.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2024 | 07:02
Hvert fór fylgið og hvers vegna?
Í Heimildinni er farið yfir það hvernig fylgið við stjórnmálaflokkana hefur hreyfst frá síðustu kosningum.
Hvaðan kom það, hvert fór það og hvar er það, fylgið sem flokkarnir fengu síðast þá er kosið var til Alþingis?
Það er líka farið yfir það hvernig fylgið við stjórnmálaflokkana hefur hreyfst frá síðustu kosningum. Hvaðan kom það og hvert fór, fylgið sem flokkarnir fengu síðast.
Önnur eins hreyfing á fylgi milli flokka og nú er, hefur varla sést áður og sé skoðanakönnunum treystandi er einn fyrrverandi stjórnarflokkur á leið út af þingi en ýmsir aðrir flokkar blómstra sem aldrei fyrr.
Menn uppskera eins og þeir sá, segir gamalt máltæki og ekki er annað að sjá en það ætli að rætast núna, Vg virðist vera á förum eftir sjö ára daður við, Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn.
Réttara væri samt að kalla það daður við Vg hvernig Framsókn- og Sjálfstæðisflokkur hafa beygt sig undir vilja Vinstri grænna í stjórnarsamstarfinu.
Sem stendur er það Miðflokkurinn sem fitnar sem púkinn á fjósbitanum, því þangað fer fylgi Sjálfstæðisflokksins að miklum hluta og reyndar eru það stjórnarflokkarnir allir sem verða fyrir verulegu höggi, ef úrslit kosninganna verða nærri skoðanakönnunum.
Ætli ekki megi segja, svo haldið sé í máltækin, að ,,menn uppskeri eins og þeir sá og að í sumum tilfellum ,,leiti klárinn þangað sem hann er kvaldastur?
Það eru líkast til ekki þung spor fyrir fólk að yfirgefa þau sem haldið hafa í ríkisstjórnartaumana undanfarin sjö ár.
Og það hefur gengið á ýmsu, uppákomurnar verið margar og undarlegar og hér verður aðeins nefnt hvalveiðibann, virkjanabann og almenn viðleitni til að banna flest sem horfir til framfara, auk takmarkalítils innflutnings á fólki, hundum og köttum!
Menn ætluðu að slá sér upp með ýmsu, eða allt frá engu og upp í eitthvað meira!
Hvers vegna er það sagt?
Það er vegna þess, að sé farið yfir feril þessarar ríkisstjórnar, stendur ekki steinn yfir steini í: strandveiðimálum, hvalveiðimálum, samgöngumálum, heilbrigðismálum, innflytjendamálum, utanríkismálum
Einn er þó sá ráðherra sem reynt hefur að vinna vinnuna sína með vönduðum og yfirveguðum hætti. Þar er um að ræða konu úr Hveragerði, sem alin er upp við það, að framsóknarmennsku eigi að varast og ekki taka til fyrirmyndar.
Þau sem fyrir voru er hún kom inn í ríkisstjórnina höfðu um annað að hugsa og reyndu að slá sér upp á ,,kófinu og ófriðnum í austur- Evrópu svo dæmi sé tekið.
Það gerðu þau með því að segja Rússum stríð á hendur með barnalegum tilburðum eins og sendiráðslokunum og því að bjóða NATO- kjarnorkukafbáta velkomna í íslenskar hafnir.
Auk alskyns stuðningi við stjórnvöld sem efast má um að séu stjórn í merkingu þess orðs, í ríki sem sumir efast um rísi undir nafni og stjórnvöld sem enga stjórn höfðu á ríki sínu með alkunnum afleiðingum.
Það verður svo sannarlega ekki sagt að ekki hafi verið reynt en það hefur nær allt mistekist og nú eru meistarar fjassins meira að segja farnir að æsa sig yfir framkvæmdunum við Landspítalann og þéttingu byggðar í Reykjavík, sem þeir hamast síðan sjálfir við að framkvæma á Valhallarlóð sinni!
Og við bætist ,,Borgarlína, auk takmarkalítillar ástar á flugvöll í miðbæ Reykjavíkur.
Flugvallarást sem er slík að hún yfirtekur flest og það ekki síst hjá framsóknarmönnum í Framsóknarflokki, Sjálfstæðisflokki og Miðflokki.
Verði samgöngur bættar í Reykjavík, byggingu spítalans lokið og flugvellinum fundinn annar og betri staður, verða viðhorfin önnur og þá verður það efalítið svo, að langflestir myndu vilja þær Liljur kveðið hafa.
2.11.2024 | 07:09
Framboðsfundur í sjónvarpinu
Boðið var upp á framboðsfund í Sjónvarpi allra landsmanna í gærkvöldi 1/11/2024 og það var sjón að sjá og heyra.
Myndirnar eru fengnar af vefsíðum Morgunblaðsins og Ríkisútvarpsins. Kjósandinn er með valkvíða sem von er þegar í boði eru tíu listar og það er Ívar teiknari Morgunblaðsins sem teiknar myndina.
Kristrún Frostadóttir er formaður Samfylkingarinnar, flokksins sem þjóðin bindur mestar vonir við skv. niðurstöðu skoðanakannana.
Fulltrúi Miðflokksins var í hlutverki trúðsins eða grínarans, lék á alls oddi og virtist vera kominn á fundinn til að skemmta sér og reyna að skemmta öðrum en þó aðallega sjálfum sér.
Hægt er að hafa ýmsar skoðanir á hvernig til hafi tekist en óhætt er að segja að framkoma mannsins hafi frekar lífgað upp á stemminguna en hitt.
Ljóst er að íhaldsflokkarnir eru orðnir a.m.k. þrír, þ.e. Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og síðan Viðreisn sem er með rætur þaðan og ætli ekki megi segja að Vinstri græn séu líka í þeim hópi, þó þau telji sig til vinstri.
Hart var sótt að formanni Samfylkingarinnar sem vonlegt er, þar sem ógnin við flokkana fyrrnefndu kemur fyrst og fremst þaðan.
Kristrún Frostadóttir var í forsvari fyrir flokkinn sem hún leiðir og lét engan eiga neitt inni hjá sér og svaraði spurningum og skotum með beinskeyttum og málefnalegum hætti.
Segja verður það eins og er, að sjónvarpsefni af þessu tagi er almennt séð ekki sérlega aðlaðandi fyrir áhorfendur en þáttastjórnendur buðu upp á ágætar nýjungar eins og það, að bjóða fulltrúum framboða, að spyrja hvern annan spurninga og svörin komu yfirleitt greiðlega til baka.
Einbjörn spurði tvíbjörn, sem síðan spurði þríbjörn o.s.frv. eða alls upp í tíu, því svo mörg eru framboðin!
Þættinum lauk síðan með þeim óvanalega hætti að menn áttu að segja eitthvað gott við og um hvern annan.
Góð nýjung sem gera má ráð fyrir að muni festast í sessi!
Sumir þeirra sem í framboði voru, gerðu tilraun til að sauma að formanni Samfylkingarinnar en uppskáru ekki eins og þeir sáðu, því Kristrún svaraði greiðlega og málefnalega.
Það er von að menn skuli hafa beint spjótum sínum að henni, því flokkur hennar hefur skorað hátt í skoðanakönnunum og því er það, að þaðan kemur þeim ógnin.
Það sannaðist sem sagt, að gamlir refir vilja verja sitt og halda áfram að ráðskast með þjóðina og eigur hennar.
Að þessu sinni var ekki rifist um gjafasölu á lambakjöti til annarra landa, því önnur og erfiðari mál voru og eru efst á baugi, eins og t.d. óheftur innflutningur fólks frá útlöndum, fólks sem komið er flest til að leita sér að betri stað til að vera á í lífinu.
En það tekur í fyrir litla þjóð að fjárfesta í slíkum innflutningi og því er skiljanlegt að menn vilji ræða málin og skoða hvort farið sé of geyst.
Komið hafa fram tölur um að hvert gæludýr, sem inn er flutt með húsbændum sínum, kosti í slíkum innflutningi um þrjár milljónir króna og hver maður aðrar sjö slíkar.
Vonandi er það góð fjárfesting fyrir þjóðarbúið okkar en það mun koma í ljós með tímanum.
1.11.2024 | 06:08
Úkraínufréttir á íslenskum miðli
Það er fjallað um stríðið í Úkraínu á vefmiðlinum visir.is og þar kemur ýmislegt fram sem lítið hefur borið á áður.
Sagt er t.d. frá því að sókn Rússa í stríðinu hafi gengið vel að undanförnu, einkum í Donetks héraði.
Ef ritari man rétt er það eitt að sjálfstjórnarhéruðunum svokölluðu á Donbassvæðinu.
Sagt er frá því að illa gangi að manna úkraínska herinn, sem hefur orðið til þess að komið hafa fram hugmyndir um, að lækka herskyldualdurinn, sem ekki fellur öllum vel í geð.
Sagt er frá ýmsu fleiru sem stingur í stúf við það sem við höfum fengið að heyra, s.s. frá Zelensky, sem var nýlega sérlegur gestur íslensku ríkisstjórnarinnar á einhverskonar norðurlanda- hittingi stórmenna.
Hvenær og hvernig það gerðist að Úkraína varð eitt af Norðurlöndunum hefur ekki ekki komið fram.
Ríkisstjórnin leysti mann þennan út með eins og hálfs milljarðs tékka á ríkissjóð Íslands, sem trúlega er gefinn út án mikillar innistæðu.
Um er að ræða íslenskar krónur en eins og kunnugt er, fæst ekki mikið fyrir þær núorðið.
Sé litið á kort af svæðinu, þá er ljóst að mikið er eftir ef það er ætlun Rússa að leggja undir sig alla Úkraínu, sem reyndar hefur hvergi komið fram svo ritari muni eftir.
Fækki fólki í landinu eins mikið áfram og gerst hefur síðan Rússar hófu hernaðinn, er hætt við að styrjöldin lognist út af sjálfu sér.
Í grein Vísis er vitnað í og gefnir tenglar á ýmsa miðla eins og Kyiv Independent og Wall Streat Journal.
Allt stemmir þetta og styður við það sem sést hefur á öðrum bandarískum miðlum.
Hvernig andúkraínskur áróður af þessu tagi um hið nýtilkomna norræna land, hefur getað sloppið inn á síður íslensks fjölmiðils er óútskýrt og ef til vill óútskýranlegt.
Sé horft á kort af svæðinu sést að mikið er eftir, ef það er ætlun Rússa að leggja undir sig alla Úkraínu.
Það hefur reyndar hvergi komið fram, svo ritari viti til, að það sé ætlunin en ætti að verða auðvelt, ef íbúar Úkraínu halda áfram að flýja land sitt í sama mæli og að undanförnu.
Þegar hver kona eignast ekki nema eitt barn að meðaltali, eins og fram kemur í fréttinni að sé staðan, þarf ekki miklar reikniskúnstir til að finna út, að þjóð sem þannig er komið fyrir, á sér ekki mjög langa framtíð.
Þau ættu að hafa það í huga, þau sem bjóða sig fram til Alþingis Íslendinga, að búa svo í haginn fyrir ungt fólk, að það geti haldi við stofninum og helst dálítið meira en það!
31.10.2024 | 08:51
Heimsóknir, ferðalög og gjafmildi
Í fréttum hefur verið sagt frá því að kennarar séu í verkfalli og launakrafan er skýr, því komið hefur fram að hún er upp á eina milljón í mánaðarlaun.
En það eru fleiri sem þurfa sitt og sem dæmi má taka, að ríkissjóður mun standa undir stórum hluta kostnaðar við för 46 fulltrúa til Bakú til að ræða loftslagsmál.
Í Bakú mun vera margt að sjá og eflaust hefur verið kominn tími á að endurtaka Abú Dabí ferðalagið minnisstæða.
Í inngangi fréttar af flandrinu í Morgunblaðinu er sagt frá því að:
,,Íslenska sendinefndin sem fer á aðildaríkjaþing loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna í Bakú í Aserbaísjan, COP29, verður skipuð 46 fulltrúum. Í þeim hópi eru 10 manns úr opinberri sendinefnd auk fulltrúa félagasamtaka á borð við unga umhverfissinna og náttúruverndarsamtök"
Það er oftast gaman að ferðast um og skoða heiminn og eflaust er ekki verra að gera það á kostnað ríkissjóðs.
Enginn átti von á að ríkisstjórnin væri í sérstöku sparnaðarkasti svona rétt fyrir kosningar og því kemur ekki á óvart að hún veitir líka nokkrum krónum í stríðsreksturinn í Úkraínu og mun það vera uppskera forseta þess lands eftir heimsóknina til Íslands sem nýlokið er.
Þeir hittust í hráslaganum nýlega og betra þykir að ferðir séu til fjár frekar en hitt og stóri maðurinn á myndinni hefur eflaust vilja vera rausnarlegur við þann sem er við hlið hans.
Einn og hálfur íslenskur milljarður er hvort eð er ekki stór upphæð í hugum hinna hugumstóru stjórnenda þjóðar okkar.
Á visir.is segir eftirfarandi:
,,Einn og hálfur milljarður króna í aukinn stuðning við Úkraínu í fjáraukalögum á að mæta kostnaði við auknar skuldbindingar Íslands sem samið var um á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í sumar. Stuðningurinn fer áfram í þjálfun, kaup á búnaði og hergögnum og framlögum í sjóði sem styðja varnir Úkraínu."
Það er gott að eiga góða að þegar á þarf að halda og það veit Zelensky og það veit Bjarni og þjóð veit þá tveir vita.
Ritara hefði þótt gæfulegra að peningaupphæð af þessari stærðargráðu hefði verið varið í að koma á friði austur þar, að mönnum hefði verið boðið að samningaborðinu t.d. í Höfða og fengnir til að ræða málin.
Trúlega er það ekki eins auðvelt og halda mætti en það hefði mátt reyna og það þó flumbra í ráðherrastóli hafi rekið rússneska sendiherrann heim í flumbrukasti.
En það hefði mátt, viðurkenna mistökin og biðjast diplomatískrar afsökunar og reyna síðan að stuðla að friði milli landanna í stað þess að blása upp ófriðinn, þ.e.a.s. ef það er viðkomandi ekki um megn.
Hér undir lok þess pistils er rétt að benda á frétt sem birtist í dag á CNN.COM og bera það síðan saman við það sem haldið er að íslenskri þjóð um málið.
Þar kemur ýmislegt upplýsandi fram um það sem er að gerast og hefur verið að gerast að undanförnu í málefnum Úkraínu.
29.10.2024 | 06:40
Framkvæmdahugur og Silfrið í Sjónvarpinu
Það er algengt að vilji til framkvæmda færist í aukana hjá pólitíkusum þegar dregur að kosningum og þá er oft lofað öllu fögru en stundum minna staðið við af því sem lofað var, að kosningunum loknum.
Enda er það nú svo, að vilji er eitt en getan til að gera annað.
Í fréttinni hér til hliðar sem birtist í Morgunblaðinu 28/10/2024 er sagt frá því sem er verið að gera en ekki því sem á að gera eftir kosningar.
Hugumstórir pólitíkusar eiga það til að skreppa saman þegar til alvörunnar kemur og geta þeir oftar en ekki skýlt sér bakvið það: að það þurfi samstilltan meirihluta til að geta komið málum fram.
Í aðdraganda kosninga verða alls kyns uppákomur svo sem við sjáum dæmi um, þar sem t.d. formaður flokks útskýrði fyrir kjósanda, að hann þ.e. kjósandinn, ætti alltaf þann möguleika, að strika yfir frambjóðanda sem væri á listanum ef kjósandinn væri ekki sáttur við frambjóðandann og setja síðan að því loknu hið eftirsóknarverða X á ,,réttan" stað.
Af þessu hefur orðið mikið ,,frétta"- gaspur með japli jamli og fuðri, sem engu skilar nema leiðindum til þeirra sem hlut eiga að máli.
Hvað sem þessu líður, verður kosið til þings eftir skamman tíma og verður fróðlegt að sjá hver útkoman verður.
Vonandi verður hún þannig að hægt verði að mynda starfhæfa ríkisstjórn sem geti tekið við stjórnartaumunum eftir stjórnleysið sem ríkt hefur undanfarin ár.
Ríkisstjórn sem fátt kann né getur, annað en ausa peningum út og suður, eða í allt frá stríðsrekstri og yfir í gæludýrainnflutning, sem sagður er kosta 3 milljónir á hvert dýr, er ekki alveg að standa sig að margra mati.
Að þessu sögðu er rétt að óska íbúum Þorlákshafnar til hamingju með uppbygginguna sem orðið hefur í sveitarfélaginu undanfarin ár.
Það hefur verið ánægjulegt að sjá Þorlákshöfn blómstra og umsvifin þar aukast dag frá degi og það er reyndar ekki ólíkt því sem sjá hefur mátt í Reykjavík undir stjórn þess meirihluta, sem Dagur B. Eggertsson hefur stýrt af mikilli lagni, maðurinn sem strika má út sem aðra ef vilji er til og finni menn hjá sér hvöt til þess.
Í Reykjavík þurfti að byggja breyta og bæta eftir langan tíma sem liðið hafði án þess að það væri gert með sæmilega skipulögðum hætti.
Það var nefnilega sú tíð að hverfi byggðust upp hér og þar um borgarlandið, að því eð virtist án þess að heildarskipulag væri haft í huga.
Þétting byggðar var notað af andstæðingum Dags og félaga sem skammaryrði en við sem munum eftir slettu- uppbyggingunni sem áður var, fögnum því sem að undanförnu hefur verið að gerast.
Og ekki má gleyma því, að Sjálfstæðismenn hrifust með og ákváðu að ,,þétta" byggðina við Valhöllina sína og gengur það bara vel eftir því sem best er vitað og fyrir það munu hafa fengist einhverjir aurar.
Um uppbyggingu flokksins á reitnum má lesa í hér og síðan hér og eflaust víðar ef hugur stendur til.
Það er sem sé svo, að þétting byggðar getur verið lausnarorð þegar það hentar og kemur sér vel!
Við þetta er því að bæta, að í Silfrinu á Ríkissjónvarpinu í gærkvöldi 28/10/2024 sýndi Dagur úr hverju hann er gerður og hversvegna hann hefur enst svona vel í forystunni í Reykjavík.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2024 | 16:36
Brú yfir Ölfusá
Nútíð og fortíð.
Forfeður okkar og mæður fóru fyrrum um landið með hjálp þeirra sem sjást hér á myndinni.
Tímarnir breyttust og þar kom, að í stað þarfasta þjónsins kom annar slíkur og það sést glitta í þann sem við tók á myndinni sé hún er skoðuð vel.
Tækniundrið sem seinna kom til sögunnar, þjónar nú m.a. því hlutverki að flytja hesta í kerrum vítt og breitt um landið og öruggt má telja að forfeður okkar og mæður hafi ekki séð það fyrir, að svo myndi verða.
Til að þjónninn sem við tók, kæmist vandræðalítið um landið, þurfti að leggja vegi og byggja brýr og þjóðin sem ekki réði yfir miklum tækjakosti réðst í það í fátækt sinni, að byggja brýr yfir vatnsföllin og það var m.a. gert við Selfoss.
Efninu í fyrri brúna var skipað upp á Eyrarbakka og hún síðan smíðuð og vígð þann 8. september 1891.
Við sjáum farartæki fyrri tíðar fara yfir brúna og má nærri geta hvílík samgöngubót hún hefur verið fyrir fólkið sem komast þurfti yfir Ölfusá.
Eins og kunnugt er, þá fór svo, að brúin hrundi árið 1944 þegar mjólkurbíll með annan slíkan í togi fóru út á brúna sem ekki þoldi þungann, með þeim afleiðingum að hún gaf sig og báðir bílarnir féllu í ána.
Mynd fengin úr Öldinni okkar 1931 til 1950, bls. 215.
Mennirnir tveir sem í bílunum voru, björguðust og verður það að teljast mikið lán.
Byggð var ný brú yfir ána sem enn stendur en svo er komið, að farið er að huga að byggingu nýrrar brúar.
Það gengur ekki vandræðalaust að koma þeirri framkvæmd af stað en við skulum vona að hún fari að losna úr þrætubókarrugli nútímans og að hún komist í gagnið áður en stórskaði verður.
Það er enginn skortur á úrtölumönnum varðandi þá framkvæmd eins og við vitum og á myndinni sjáum við einn af mörgum sem telja enga þörf fyrir nýja brú.
Hvort hann hefur kynnt sér álagið sem er á hinu átta áratuga gamla mannvirki, vitum við ekki en hafi hann gert það, þá er viðhorfið enn óskiljanlegra.
23.10.2024 | 07:26
Dýrin og pólitíkin
Enn eru það blessuð dýrin sem við virðum fyrir okkur og það er ekki alltaf gott að ráða í hvað þau eru að hugsa en ef það er um íslenska pólitík, þá er ekki að undra þó þau séu bæði hugsi og séu á verði.
Fylgi flokkanna er nálægt því sem súluritið sýnir og ef eitthvað er til að undrast, þá er það, hve íhaldsflokkarnir fjórir - Framsóknarflokkurinn, Viðreisn, Sjálfstæðisflokkurinn, Flokkur fólksins, Sósíalistaflokkurinn, Miðflokkurinn og Vinstri hreyfingin grænt framboð - njóta mikils stuðnings.
Það er Samfylkingin ein sem rís hæst í fylgi þegar könnunin er gerð, er með um 25% og ef hinir flokkarnir ná saman að loknum kosningum og ef niðurstöður þeirra verða svo sem þessi könnun leiðir í ljós, þá er sjálfgefið að við munum búa við ríkisstjórn margra flokka; flokka sem flestir hafa lítið fram að færa.
En við skoðum fleira og sjáum að það er hægt að magna með sér áhyggjur af nánast hverju sem er og kona sem hefur áhyggjur af norðurljósarannsóknum er í framboði.
Hún er áhyggjufull um sumt og annað ekki eins og gengur og eftir henni er haft að ,,á þeim tímum sem við lifum, er ofboðslega mikilvægt fyrir Ísland að fullorðnast í því hvernig við horfum á heiminn..."!
Hvort hún hefur áhyggjur af því sem fram kemur í aðsendri grein um vopnakaup íslensku þjóðarinnar (í Morgunblaðinu) er ekki gott að segja.
Við vitum að áhyggjur geta verið valkvæðar, ef svo má segja, að minnsta kosti ef þær eru fundnar upp og búnar til á staðnum.
Hún ætti kannski að hafa áhyggjur af því sem fram kemur í greininni hér að ofan en í henni er fullyrt, að vopnakaup íslensku þjóðarinnar handa Úkraínu hafi verið landráð.
Hafi einhver gerst sekur um landráð ætti sá að skoða sinn gang en vel getur verið að skoðun frambjóðandans sé sú, að ásökunin sé ekki svaraverð og það þó hún hafi birst í aðsendri grein í blaði allra landsmanna, eina dagblaðinu sem eftir er, þ.e. Morgunblaðinu.
20.10.2024 | 07:43
Litið yfir stjórnarslit og fl.
Nýr forseti er vart tekinn við embætti þegar hann fær yfir sig stjórnarslit og boðun til alþingiskosninga og við skulum ekki taka þessa fyrirsögn Morgunblaðsins allt og bókstaflega.
Fjölmiðlarnir hafa frá nógu að segja vegna þessa en líklega hefur Sjónvarp Ríkisútvarpsins náð því að toppa uppákomuna með ógnarlöngum þætti sínum um málið í gærkvöldi (14/10/2024).
Við kíkjum upp úr holunni okkar með hálfum huga, tilbúin til að hrökkvar til baka og vonum að selurinn verði ekki barinn með bókinni sem haldið er á lofti og okkur léttir við að sjá hversu ánægður Bjarni virðist vera á fundinum með forsetanum.
Öðruvísi var að sjá til hans í ógnarlöngum spjallþætti Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi, þar sem hann virtist vera reiður til að byrja með en allt jafnaði það sig er á leið.
Eins og venjulega höfðu þar annars hæst þau sem minnst höfðu til málanna að leggja og það var næstum pínlegt að sjá formann Miðflokksins í hlutverki sem mun hafa átt að vera hlutverk grínarans.
Formaður Flokks fólksins sem svo er kallaður, sagði mikið en samt fátt og var það allt samkvæmt venju.
Viðreisnarfulltrúinn í þættinum virtist vera ánægður og minnti helst á leikskólakennara sem fylgist með án þess að gera neitt.
Vinstrigræni formaðurinn var sem úr honum væri allur vindur og var í raun sem felmtri sleginn og minnti á, að samkvæmt skoðanakönnunum, væri allt pólitískt brölt í þátíð hjá þeim.
Framsóknarráðherrann sem á fundinum var hélt ró sinni eftir því sem best varð séð og það sama má segja um formann Samfylkingarinnar og við vitum að Kristrún kann að leggja saman og draga frá, deila margfalda og heilda og örugglega ýmsar fleiri reikniskúnstir.
Því er það að þjóðin veðjar einna helst á þann flokk, enda vel meinandi og skipaður mörgu góðu fólki.
Að því sögðu er rétt að taka það fram að vafalaust er svo með nær allt það fólk sem þarna var þátttakendur, að það meinar eflaust vel en skortir sumt kannski yfirsýn, reynslu, innsæi, raunsæi og þekkingu.
Sé svo, þá er gott að leita til þeirra sem betur búa, leita ráða og bera sig saman, þá kemur þetta allt og enginn er verri þó hann horfist í augu við veikleika sína og bæti þá upp með aðfenginni aðstoð.
Mistök og flumbrugangur í stjórn heillar þjóðar geta haft alvarlegar afleiðingar eins og sagan sýnir og þá er ekki eingöngu átt við löngu liðinn tíma, heldur og ekki síður þann tíma sem við lifum á nú um stundir.