11.8.2025 | 07:23
Hin endanlega þöggun?
Fréttaveitan Al Jazeera segir frá drápum Ísraelshers á fréttamönnum stöðvarinnar.
Menn afla sér ekki vinsælda, með því að segja frá því sem er að gerast á Gaza og við munum t.d. eftir sænskri stúlku og félögum hennar sem ætluðu að færa sveltandi fólki á svæðinu mat.
Hún var ekki drepin og samkvæmt því sem fréttst hefur, ætlar hún og félagar hennar að reyna aftur.
Tilgangsleysi slíkra ferða er vitaskuld algjört og þó ekki, því viðbrögð Ísraela sýna að eitthvað er að fela en við vitum ekki hvað það er, því allir sem vita vilja, vita um hátterni hins ísraelska hers.
Hér verður því ekki haldið fram, að Hamasliðar séu til fyrirmyndar í sinni framgöngu en þeir hafa þó það til síns máls, að það er verið að ræna fólkið sem þeir berjast fyrir, landi sínu og lifibrauði og lífsafkomunni allri.
Trump hefur lausn á þessu eins og flestu öðru og að hans mati felst hin endanlega lausn í því, að hreinsa Gaza af öllum arabískum íbúum og koma þeim ,,eitthvað annað, því þá verður hægt að breyta svæðinu í sólstrandarparadís fyrir vestræna og sólþyrsta, til að baða sig á.
Ekkert hefur fréttst af þessari ,,endanlegu lausn um talsverðan tíma og ef til vill hefur karlinn talið að hin ,,endanlega lausn fælist í því að hitta Putin og reyna að stilla til friðar á austur- evrópsku landsvæði.
Það ætlar hann að gera og ef til vill munu þær Þorgerður og Þórdís leggja þar hönd á friðarplóg.
Þær eru svo góðar í því!!
9.8.2025 | 08:03
Niðurstaða skoðanakönnunar
Í skoðanakönnun sem Gallup gerði, kom í ljós að vilji almennings í Úkraínu er, að komið verði á friði og að styrjöldinni sem nú er ljúki.
Svo sem sjá má hefur stuðningur við stríðsreksturinn minnkað verulega og áhugi fyrir að friður komist á með samningaviðræðum hefur aukist að sama skapi, frá því sem var árið 2022.
Niðurstöðurnar eru eftirfarandi: Þó að flestir Úkraínumenn séu tilbúnir til að sjá fyrir endann á bardögunum, þá búast fáir við því, að þeim ljúki fljótlega.
Almenningur í Úkraínu sér helst fyrir sér, að það verði ESB, Bretland og Bandaríkin sem komi til með að binda enda á stríðið.
Jákvæðni gagnvart Bandaríkjunum hefur minnkað.
Vonir íbúanna um skjóta aðild að NATO er ekki sérlega miklar, því aðeins um 32% þeirra sem spurðir voru, reiknuðu með að landið fengi aðild að NATO á næsta áratug.
Tengill inn á umfjöllun Gallup er í upphafi þessa pistils og þar geta þeir sem áhuga hafa, skoðað niðurstöðurnar betur.
Þar eru líka fleiri myndir sem hægt er að skoða.
Vefmiðillinn Þjóðólfur fjallar ítarlegar um könnunina og þar rakst ritari fyrst á hana.
5.8.2025 | 07:09
Ég má það ef ég get það
Hún man tímana tvenna og segir frá því sem hún upplifði: Klukkan 08:15 þann 6. ágúst 1945, þegar kjarnorkusprengja féll eins og steinn af himni yfir Hiroshima, þegar Lee Jung-soon var á leið í grunnskóla.
Hin nú 88 ára gamla kona, veifar höndunum eins og hún sé að reyna að ýta minningunni frá sér.
"Faðir minn var að fara í vinnuna en hann kom skyndilega hlaupandi til baka og sagði okkur að fara strax," rifjar hún upp.
"Þeir segja að göturnar hafi verið fullar af látnu fólki en mér var svo brugðið að það eina sem ég man eftir er gráturinn".
,,Ég grét bara og grét."
Lík fórnarlambanna ,,brunnu svo aðeins augu þeirra sáust," segir Lee, þegar sprenging sem jafngildir 15.000 tonnum af TNT var varpað á 420.000 manna borg.
Það sem eftir stóð í kjölfarinu voru lík sem voru of illa farin til að hægt væri að bera kennsl á þau. "Kjarnorkusprengjan... Þetta er svo ógnvekjandi vopn."
Og í dag er verið að gæla við kjarnorkuvopn og það er sama ríkið og það eina, sem hefur beitt þeim sem gerir það.
Þeir segjast hafa siglt tveimur kjarnorkukafbátum nær Rússlandi, væntanlega til að reyna að þvinga Rússa til að láta undan ,,stjórn" Úkraínu.
Þeir sem nú hóta beitingu kjarnorkuvopna eru sömu þjóðar og sú eina sem hefur beitt þeim á aðra þjóð, að því frádregnu hvernig yfirgangur og skeytingarleysi hefur ráðið för í tilraunum með þessi vopn á Kyrrahafseyju.
Ég má það ef ég get það, er leiðarstefið sem farið er eftir og þeirra er mátturinn en tæpast dýrðin, enda stríðsslóðin löng.
Þeir sviku samninginn sem gerður var í Höfða, samning sem kynti undir bjartsýni um að friður og kyrrð gæti orðið í kjölfar þess að þjóðirnar tvær sammæltust um friðarviðleitni sem ekki byggðist á ógnarjafnvægi.
Eitt er það þó sem gengur sæmilega og það er samstarf um rekstur alþjóðlegu geimstöðvarinnar svokölluðu, en um árabil þurftu Bandaríkin að treysta ,,vinum" sínum Rússum fyrir því að flytja áhafnir til og frá geimstöðinni.
Á því er orðin breyting, þar sem rakettur Musks einkafjandvinar Trumps virka orðið, þannig að fyrir nokkrum dögum tókst að skipta um áhöfn án vandræða, svo vitað sé.
Hvort á því verður framhald er ekki gott að segja; jafnvægi forseta Bandaríkjanna er lítið sem ekkert og hann virðist tala án þess að hugsa, ef hann getur þá hugsað einhverja eðlilega og sæmilega rökrétta hugsun.
,,Oft ratast kjöftugum satt á munn" segir í íslensku máltæki en í tilfelli Trumps er í mesta lagi hægt að segja að það komi einstöku sinnum fyrir.
Þetta er veruleikinn sem við búum við í heimsmálunum og óvissan hefur ekki verið meiri í langan tíma.
Að kjarnorkuveldi hóti öðru kjarnorkuveldi, þó ekki sé nema undir rós er vítavert og ýtir heimsbyggðinni út á brún hyldýpis.