Enn einn voðinn...

Fyrirbærið ,,Verkefnisstjórn rammaáætlunar" ,,hef­ur lagt til að kost­ur­inn Ham­ars­virkj­un á Aust­ur­landi fari í vernd­ar­flokk. Fyr­ir­tæk­ið Arctic Hydro, sem ætl­aði að reisa virkj­un­ina, gagn­rýn­ir til­lög­una. Það gera einnig þeir sem stefna á bygg­ingu risa­vax­ins vindorku­vers."

Sagt er frá þessu í Heimildinni þann 30/7/2024 og með fylgir mynd af fallegri fossaröð sem undir stendur:

,,Á Hraunasvæðinu, sem Arctic Hydro hugðist byggja Hamarsvirkjun á, er m.a. þessi röð fossa. Um er að ræða vatnasviðið austan Vatnajökuls og tilheyrir svæðið Djúpavogshreppi sem nú er hluti sveitarfélagsins Múlaþings."

Skjámynd 2024-07-31 074617Mynd fylgir með af fossunum og vissulega eru þeir fallegir en hvort þeir komi til með að hverfa kemur ekki fram í umfjölluninni.

Það verður ekki bæði sleppt og haldið segir einhverstaðar og það er erfitt að virkja orkuna sem felst í fallvötnum án þess að snerta við vatninu!

Við munum enn lætin sem urðu þegar til stóð að byggja Kárahnjúkavirkjun, sem þrátt fyrir þau var byggð og sem er stærsta virkjun landsins, sem vekur almenna aðdáun fyrir nú utan, að í ljós komu feiknafallegar stuðlabergsmyndanir sem vekja almenna aðdáun þeirra sem þær sjá þær.

Það var mótmælt og sönglað, flogið og staðið og í stuttu máli allt gert sem hægt var til að veita útrás meintri væntumþykju fyrir náttúrunni, sem menn virtust líta svo á að hefði ætíð verið óbreytanleg allt frá upphafi sköpunar veraldarinnar.

Á þeim tíma var atvinnulíf á Austurlandi frekar dapurlegt og flestir voru sammála um að það mætti breytast til batnaðar en sönglarar og mótmælendur vildu að það gerðist með því að gera ekkert!

Það var þeirra aðall og engu mátti breyta, en hvort það átti að vera í þágu hreindýranna sem ráfa um hálendið var ekki augljóst og ef til vill var mótmælt með ,,vistvænu" flugrelluflugi til þess eins, að fá útrás fyrir innibirgða ónýtta orku viðkomandi, sem vissu eflaust ekki að hreindýrin voru innflutt ,,aðskotadýr" í íslenskri náttúru.

Hráefnin í flugvélina og hljómtækin - ekki má gleyma þeim - voru einhverstaðar sprottin úr jörðu og unnin, til að hægt væri að búa til fararskjóta fyrir m.a. íslenska veðurvita, sem vildu svo sem allir vitar ,,vísa veginn"!

Skemmst er frá því að segja að atvinnulíf á Austurlandi glaðnaði og dafnaði í kjölfarið, reis upp og fór að blómstra.

Nú vilja framsýnir menn byggja virkjun til orkuöflunar og þá er sem gamall leikur ætli að endurtaka sig, því upp rísa þeir sem telja sig vera einkavini náttúrunnar og finna því allt til foráttu.

Vonandi gengur það yfir sem annað, því lífið gengur sinn gang, vatn mun halda áfram að renna svo lengi sem rignir og jöklar bráðna en óvíst er, að helfrost hugarfarsins þiðni jafn greiðlega.

Og þó, því aldrei er að vita nema að af mönnum renni móðurinn og að þeir verði til, sem muni sækja um vinnu í atvinnurekstrinum sem upp kemur til með að spretta þegar ný virkjun er komin til sögunnar.

Finnist mönnum það ekki nógu fínt, má alltaf finna sér nýtt verkefni til að berjast gegn, agnúast út í og finna allt til foráttu.


Barnseignasamdráttur og fleira

Við finnum það á pyngjunni að hagurinn er að versna, flest sem okkur langar til að kaupa er dýrara í dag en það var í gær og á morgun verður það enn dýrara. 

Það er víðar sem staðan er þessu lík og til dæmis er bandarískur almenningur farinn að finna fyrir því og í DR er sagt frá viðlíka ástandi. 

Japanskt fólk á barnseignaraldri er hætt að eiga börn af ýmsum ástæðum, eins og t.d. þeim að það þarf að vinna meira í dag en í gær o. s. frv. 

Hér eru það vaxtakjörin sem miklu valda en það segir samt ekki alla sögu, því þau eru viðbrögð við ástandi efnahagsmála í þjóðfélaginu. 

Ríkisstjórnin hefur verið brokkgeng svo vægt sé til orða tekið og við sem höfum haft gaman að því að sitja á hestum vitum hvað það þýðir! 

Þegar hver höndin er upp á móti annarri í ríkisstjórnarsamstarfi er ekki von á góðu. 

Skjámynd 2024-06-26 075532Kannski verður þessu bjargað með ,,kynlegu” skuldabréfsútboði eða einhverju enn sérkennilegra. 

Við vitum aldrei hverju verður tekið upp á næst og það eitt og sér er alveg nóg til að valda óvissu. 

Almenningur getur ekki ráðist í skuldabréfaútgáfu af því tagi sem nefnt var hér að ofan og því tekur fólk til annarra ráða. 

Það er t.d. auðveldara að reka litla fjölskyldu en stóra, útlátin eru minni, plássþörfin líka og sagt var frá því, að til stæði að koma upp hjólhýsahverfi í Reykjavík og líklegt er að það sé gert til að létta á þörfinni fyrir húsnæði. 

Þau sem búa í hjólhýsum búa ekki í íbúðum, svo einfalt er það! 

Skjámynd 2024-01-17 042626Ferðamannastraumurinn er að minnka, sem betur fer segir Vegagerðin, sem er í vandræðum með að fjármagna viðhald á vegum og enn meiri vandræðum með að finna aura til að búa til nýja vegi! 

Trúlega eru það þó frekar þungaflutningar sem slíta vegunum mest þ.e.a.s. flutningar sem gætu farið fram með strandferðaskipum.

Sú aðferð við flutninga, slítur ekki vegum og ekki heldur sjónum segir björninn!


Hreinskilni og föðurlandsást

Í Morgunblaðinu birtist aðsend grein fyrir nokkrum dögum undir yfirskriftinni ,,Lifi Úkraína“.

Skjámynd 2024-07-22 075344Flestum er kunnugt um ástandið sem er í Úkraínu og þó menn séu ekki sammála um hver gerði hverjum, né heldur hvað varð til þess að Rússar gripu til vopna, þá erum við væntanlega öll sammála um að ástandið sé slæmt og að því þurfi að breyta til betri vegar.

Eitt er að vilja breyta einhverju en annað er að koma sér saman um hvernig það verði gert.

Við vitum söguna, flest allavega, en það er erfiðara að koma sér saman um hvernig eigi að segja hana, skilja hana og læra af henni.

Sumir kjósa að fara þá leið að velja sér afmarkaðan kafla af heildinni og dæma síðan út frá því.

Greinin sem Anastasiia sendi til blaðsins er stutt og skorinorð og af hálfu þess sem þetta ritar verða ekki gerðar frekari viðbætur við hana en bent á athyglisverðan kafla úr greininni.

Þar kemur m.a. fram það sem oft hefur verið bent á við lítinn fögnuð sumra, svo við skulum skoða það sem konan segir:

,,Mig lang­ar að minn­ast á fjár­stuðning þjóða til Úkraínu. Pen­ing­arn­ir enda hjá ráðamönn­um. Þetta eru þjóf­ar. Elít­an er gull­tryggð. Hvers vegna eru ekki all­ir boðaðir í her­inn? Syn­ir ráðamanna og yf­ir­valda eru und­anþegn­ir herkvaðningu. Allt hraust­ir menn. Í staðinn eru hálffatlaðir almúga­menn send­ir í fremstu víg­línu. Við al­menn­ing­ur í Úkraínu spyrj­um margra spurn­inga, en fáum eng­in raun­veru­leg svör.“

Það er sem svo oft, að spurt er spurninga og við þeim fást ekki svör!

Þau sem bera hag úkraínsku þjóðarinnar fyrir brjósti ættu því að gangast í það að stilla til friðar milli landanna sem takast á og reyna að vinna bug á spillingunni sem þar ríkir, í stað þess að kynda undir ófriði.

,,ráðamenn“ Íslands skuli hafa tekið þátt í því að blása upp ófriðarbálið, í stað þess að reyna að lægja öldurnar, er ekki til fyrirmyndar svo ekki sé meira sagt.

Trump (hinn trompaði) hefur haldið því fram að hann geti komið á friði með spjalli og ef svo er, því þá ekki aðrir, sem líta stórt á sig og þykjast kunna ráð við hverjum vanda?


Líf dýra og manna

Allir geta verið vinir, ef þeir vilja það en það er sem dýrin eigi betra með það a.m.k. stundum.

Skjámynd 2024-07-23 085254Eins og svo oft áður sjáum við, að við getum sótt fyrirmyndir til þeirra um hvernig hægt er að koma sér saman og trúlega koma þau oftast til dyranna eins og þau er klædd. 

Teiknarar blaðanna taka þetta líka stundum fyrir og fanga vandann oft ótrúlega vel, sýna okkur með nokkrum strokum hvernig við erum og hvernig við gætum verið.

Við áttum okkur strax á því hverjir ganga hólmgönguna og við sjáum líka hvernig hún endaði en í miðjunni er köngulóin litla og fallega sem fékk nafnið Vigdisia, eftir forsetanum okkar kæra, sem á ekkert sameiginlegt með bandarísku fígúrunum sem birtast okkur á myndunum sitthvoru megin við áttfætlinginn.

Skjámynd 2024-07-24 145402Teiknararnir bregðast okkur ekki, en það sama verður ekki sagt um viðfangsefni þeirra.

Dýrið litla stendur fyrir sínu en hætt er við að karlarnir tveir geri það ekki; hafa ekki gert það og muni ekki gera það.

Biden er reyndar floginn út en hinn situr eftir, er ólíkindatól og til alls líklegur, hér eftir sem hingað til og sú í miðjunni á ekkert sameiginlegt með vininum til vinstri, ef hann er þá einhvers vinur.

Við gætum sótt okkur margar góðar fyrirmyndir til dýranna, en gerum það ekki nógu oft og trúlega flest okkar aldrei.

Það er hólmganga framundan en hvar er Joe!?

Í landinu okkar er búin að vera rysjótt tíð, það hefur ,,ekkert rignt í dag" segir karlinn og er furðu lostinn og hvernig fer fyrir vigdisiunni í tíð sem þessari, er ekki gott að segja, en við vitum að hún mun bjarga sér!

Það færi vísast betur á því að við litum til dýranna varðandi samskipti okkar mannanna á þessari Jörð, því þó þeim geti greint á, þá leysa þau málin á annan hátt en er í því  því þrætubókar- fyrirkomulagi sem við höfum komið okkur upp.

Skjámynd 2024-07-24 145909Vissulega er misjafnt milli þjóðfélaga og landa hvernig menn haga málum við val forystumanna og við á norðurlöndunum getum verið til þess að gera sátt við það kerfi sem komið hefur verið upp í kringum þessi mál, en það er ekki hægt að segja það sama víða annarstaðar.

Í auðræðisríkinu í vestri, sem er stundum kallað stærsta lýðræðisríki í heimi, ríkir ekki lýðræði af því tagi sem við þekkjum og nú stendur til að kjósa forseta þar.

Valið hefur til skamms tíma staðið um tvo aldraða karla, annan sem var forseti og hinn sem er það enn, þegar þetta er pikkað.

Hvernig málin munu þróast á hinum pólitíska vettvangi hjá þessum ,,vinum" okkar mun koma í ljós og við sjáum hvað setur!

(Teikningarnar eru fengnar úr Morgunblaðinu (Ívar) og visi.is (Halldór)).


Sjónhverfingar og afneitanir

Í safninu rekumst við á mynd sem eitt sinn var klippt út úr Morgunblaðinu.

2024-07-07 Eins og sjá má eru hjónin á teikningunni, látin vera að ræða stöðu flokksins ,,síns" og þó í þessu tilfelli sé það Sjálfstæðisflokkurinn, þá gæti það vel verið einhver annar flokkur.

Við viljum stundum ekki viðurkenna það sem við blasir og teiknarinn Ívar er að vitna í fyrirsögn þar sem sagði frá skoðanakönnun, sem sýndi fylgi stjórnmálaflokka.

Þær hafa verið að birtast að undanförnu og hafa sýnt athyglisverðar niðurstöður eins og kunnugt er og t.d. er staðan þannig að Sjálfstæðisflokkurinn nýtur lítils fylgis m.v. það sem áður var, Vinstri græn eru við það að hverfa af sviðinu og Samfylkingin fer með himinskautum, svo nokkur dæmi séu nefnd.

Aðrir flokkar eru hér og þar og almennt má segja að óánægja með ríkisstjórnina komi fram víða.

Stöðugt er verið að segja frá málum sem ekki auka vinsældir líkt og sjá má í grein sem birtist á DV.IS.

Auðvitað eru svo síðan þeir til, sem halda sig við ,,sína" flokka hvað sem tautar og raular; treysta og trúa á sitt fólk og haggast ekki með það!

Í eina dagblaðinu sem út kemur er sagt frá því að ,,trúin" á rafbíla sé Skjámynd 2024-07-04 070819minnkandi, hrun hafi orðið í sölu þeirra og okkur er sýnt súlurit því til sönnunar.

Staðan í ,,bílamálunum" er dregin upp eins og það skipti einhverju máli fyrir heiminn hvort bílar sem ekið er á um landið gangi fyrir rafmagni, bensíni eða gasolíu, þegar allir sem vilja vita, vita að það skiptir engu máli fyrir heimsbyggðina hvort svo sé eða ekki. Sumt skiptir samt máli og það er t.d. ekki sama hvernig Skjámynd 2024-07-05 063902útflutningsfyrirtækjum okkar gengur og því er gott til þess að vita að verð á afurðum álveranna sé á uppleið.

Álframleiðsluþjóðinni ætti að þykja það gott, þó þau séu til, sem vilja sem minnst af slíkri framleiðslu vita.

Við erum ekki þar og gleðjumst því yfir því sem vel gengur, vitandi að peningarnir verða ekki til af engu, þó þeir geti ótrúlega fljótt orðið að engu.

Skjámynd 2024-07-04 074418Fugl situr á steini og lætur sér fátt finnast um það sem gerist í mannheimum, býður sig ekki fram í kosningum og hann og félagar hans myndar ekki stjórnmálaflokka en taka sig þó stundum saman þegar leggja þarf upp í tvísýna langferð yfir höf og lönd.

Svo eru þau líka til sem kunna að njóta góðs félagsskapar við menn og skepnur svo sem við sjáum.

Enda fátt ljúfara en góður ilmur af hestum og notalegheitin öll sem finna má Skjámynd 2024-07-10 065117í samskiptum við þá.

Við endum þetta síðan á pistli sem birtist í ,,Staksteinum" Morgunblaðsins fyrir nokkru.

Þar eru þeir hafðir ofan frá og niður á við en formsins vegna eru þeir hér hafðir frá vinstri til hægri!

Þar er ekki töluð nein ,,hebreska" og þó ritari þessa pistils sé ekki alltaf sammála Staksteinum, þá hafði hann gaman af að renna yfir þennan!

Skjámynd 2024-07-13 075612Pistillinn fjallar um greiningu á stöðu þjóðarbúsins og þar segir m.a. í upphafi:

,,Kostuleg greining á stöðu þjóðarbúsins birtist á vefsvæði efnahags- og fjármálaráðuneytisins í síðustu viku – og ekki í fyrsta skipti. Menn eru farnir að tala um greiningardeild fjármálaráðherra í daglegu tali, en hennar helsta hlutverk virðist vera að fegra stöðu ríkisfjármála, en af þeim er fullt tilefni til að hafa áhyggjur eins og ViðskiptaMogginn rakti í síðustu viku."

Á öðrum stað í pistlinum segir að ,,álit fjármálaráðs sýnir svo engum vafa sé undirorpið að meint aðhald ríkissjóðs byggir á sjónhverfingum".

Tónninn er sleginn og pistilinn má nálgst í heild sinni á vef Morgunblaðsins á tenglinum sem er hér að neðan:

Fegrunaraðgerðir fjármálaráðuneytisins (mbl.is)


Kominn tími á frið

Á blábrúninni rekumst við á greinarstúf um hugsanlegan frið í Úkraínu og Skjámynd 2024-07-16 072314þaðan er þessi mynd fengin.

Úkraínar hafa viljað ræða um frið sem vonlegt er en hafa fram til þessa viljað ræða það á sínum forsendum og án aðkomu Rússa.

Friðarumræða af því tagi er sérkennileg en nú er sem orðin sé breyting á og að Rússar megi vera með í spjallinu, að mati Úkraína.

Minnt er á, í grein ZeroHedge, að á fyrsta fundinum sem haldinn var í Sviss hafi hvorki verið Rússar né Kínverjar en fram kemur að Zelensky og félagar hafa viljað semja um frið við Rússa, með því að semja við Kínverja!

Hvernig það á að ganga upp, er ekki gott að átta sig á en hér verður gengið út frá því að Úkraínar hafi farið landavillt og ruglað saman Rússlandi og Kína.

Hvað sem um það er, þá er ánægjulegt ef menn eru farnir að ræða um frið og vonandi, að þeim hugmyndum verði fylgt eftir.

Öllum styrjöldum hefur lokið á endanum og vonandi fer svo um þetta ömurlega stríð sem háð hefur verið af fullum(?) þunga síðustu ár, eftir stöðugar erjur í mörg ár á undan.

Það er löngu komið mál á að því ljúki.

Í frásögninni er minnt á að Úkraínar hafi lagt áherslu á að koma Putin yfir í annan heim en eins og allir vita hefur það ekki tekist, en haldi menn að hægt sé að leysa hernaðarátök milli þjóða með slíkum aðferðum eru þeir langoftast á villigötum.

Því ,,maður kemur í manns stað“ eins og þar stendur og haldi menn annað, ættu þeir að finna sér aðra vinnu en að vera talsmenn þjóðar sinnar, því ef eitthvað þjappar þjóð saman, er það aðsókn og áreiti að utan.

Bent hefur verið á, bæði fyrr og síðar, að vilji menn ófrið, þá sé best að velja sér andstæðing sem fyrirséð er að hægt sé að ráða við.

Það virðist hafa gleymst.


Skotárásin á Trump

Hver er þetta Lubbi spyr kisi? Æ, ég veit það ekki alveg en mér skilst að Skjámynd 2024-07-15 071434það sé létt í honum lundin svarar Lubbi.

Það er samt ekki létt lundin hjá þeim sem þurfa að takast á við skotárásir og manndráp gerum við ráð fyrir og við getum séð í vandaðri umfjöllun Morgunblaðsins hvað gerðist og mun koma til með að gerast í framhaldinu.

Það var gerð skotárás á forsetaframbjóðanda í Bandaríkjunum og sem vonlegt er eru fjölmiðlar heimsins talsvert uppteknir af þeim ótíðindum.

Búið er að finna út hver maðurinn er, eða réttara sagt var, því hann er horfinn yfir móðuna miklu.

Mikið er um þetta fjallað í miðlum heimsbyggðarinnar sem vonlegt er en af því að við erum íslensk, þá höldum við okkur heima.

Skjámynd 2024-07-15 070201Morgunblaðið segir frá þessu í nokkrum greinum. Í blaðinu er gengið út frá því að Trump verði óstöðvandi eftir árásina en okkur sumum virtist hann vera það fyrir, svo að frá því sjónarhorni hefur lítið breyst en þó er líklegt, að staða hans hafi styrkst, því eins og við sjáum er hann hress og steytir hnefann, þó blóðugur sé í andliti.

Það mátti litlu muna að árásarmanninum tækist það sem hann ætlaði sér, því kúlan fór í eyra Trumps og særði, svo litlu mátti muna að illa færi en hann komst lífs af og heldur ótrauður áfram að berjast.

Rætt er við íslenskan sagnfræðing sem útskýrir málið og við sjáum af Skjámynd 2024-07-15 065359textanum að enn líklegra er en áður, að Trump sigri kosningarnar.

Með því hefur skotmaðurinn líklega ekki ekki reiknað. Hann hefur hins vegar reiknað með því, að skotið banaði Trump en það fór sem betur fer öðruvísi en hann ætlaði, eins og fyrr sagði.

Hins vegar féll maður sem ætlaði að verja fjölskyldu sína og einn af þeim sem átti að gæta frambjóðandans, að ógleymdum byssumanninum sem ekki verður látinn svara til saka í þessum heimi.

Þetta mun eflaust setja sinn lit á kosningabaráttuna, því þó Bandaríkjamenn séu ýmsu vanir þegar skotvopn eru annarsvegar, þá hafa þeir eflaust ekki búist við þessu.

Við skulum vona að ekkert meira af þessu tagi eigi eftir að eiga sér stað og að kosningabaráttan fari fram með hefðbundnum hætti hér eftir, en vitanlega mun þetta sitja í mönnum.


Skotið í eyra, eða var skotið að geyga

Skjámynd 2024-07-14 063404Skotið var á Trump hinn bandaríska og niðurstaðan varð gat á hægra eyra.

Biden vottaði keppinaut sínum samúð, skotmaðurinn lést í átökum við lögregluna og á Rúv- inu er sagt frá þessu á þann veg að Trump sé ,,í lagi".

Þar koma að því að forsetaframbjóðendur í Bandaríkjum nútímans væru í lagi og er ástæða til að gleðjast yfir því!

Í Heimildinni er sagt frá því að ræstingar fari fram á Landsbókasafni og séu framkvæmdar af fyrirtæki sem er í eigu föður forsætisráðherra.

Það virðist vera dýrt að skúra skrúbba og bóna þetta safn og því eftir miklu að slægjast en ekki fylgir sögunni að strákurinn, sem á föðurinn sem um er rætt, hjálpi til við þrifin, enda mun hann vera upptekinn við sitthvað annað.

(Ritari þessa, sem telur sig vera með ryksugupróf og garðsláttuvélar, dáist að framtaksemi af þessu tagi og er farinn að hugleiða að senda konu sinn reikning!)

Skjámynd 2024-07-14 070042Fuglarnir stinga saman nefjum og það eru þeir líka að gera fuglarnir sem eru á myndinni til hægri.

,,Hinn óbærilegi léttleiki tilverunnar" birtist á myndinni sem teiknarinn okkar góði Halldór, túlkar svo ágætlega á mynd sem birtist á Vísi og við tökum eftir því, að það fer bara nokkuð vel á með frambjóðendunum tveimur, svo ekki sé meira sagt!

Hvort það er svo í raunheimum er ekki víst og þó, því Biden mun hafa gefið það til kynna á ljósan hátt að hann gæti óskað sér Trump, sem varaforseta!

Hvort það breytist við að gat komi á hægra eyra vitum við ekki en eigum von á öllu, eins og t.d. því, að biti(ð) aftan vinstra gæti skipt sköpum í því efni.


Einu sinni byrjað...þú getur ekki hætt

,,Skatt­frjáls nýt­ing á sér­eign­ar­sparn­aði til að greiða nið­ur íbúðalán á að renna út í lok árs. Hús­næð­isstuðn­ing­ur­inn, sem hef­ur kostað rík­is­sjóð á sjö­unda tug millj­arða króna af farm­tíð­ar­tekj­um, nýt­ist að­al­lega efstu tekju­hóp­um sam­fé­lags­ins."

,,Það er erfitt að hætta þessu" segir fjármálaráðherrann og fyrrum innviðaráðherra en sem slíkur fór hann með húsnæðismálin.

Grein Þórðar Snæs Júlíussonar í Heimildinni er um skattfrjálsa nýtingu séreignasparnaðar sem hægt er að nota til að greiða niður húsnæðislán en um er að ræða á fjórða tug milljarða króna, eftir því sem þar segir og gætu orðið 26 milljarðar árið 2024.

Í greininni segir ennfremur:

,,Frá því að opnað var fyrir þessa leið húsnæðisstuðnings í nóvember 2014 hafa alls 163,2 milljarðar króna ratað inn á höfuðstól lána þeirra sem hafa getað nýtt sér hann. Af þeirri upphæð hefur ríkissjóður lagt til um 61,5 milljarða..."

Þá kemur fram að um er að ræða stuðning sem helst gagnast þeim sem eru ,,betur settir" og er það að vonum.

Í greininni segir Þórður:

Séreignarsparnaðarúrræðið var kynnt til leiks sem hluti af Leiðréttingunni svokölluðu sumarið 2014. Nokkrum árum síðar var bætt við úrræðinu „Fyrsta fasteign“ sem virkar eins en er ætlað fyrstu kaupendum einvörðungu. Sá stuðningur sem úrræðið veitir þeim sem það geta nýtt felst í því að ríkið rukkar engan skatt af nýtingu séreignarsparnaðar sé hann notaður til að greiða niður höfuðstól lána á sama tíma og fullur tekjuskattur er rukkaður sé séreignarsparnaður tekinn út í kringum enda starfsævinnar. 

Ráðherra mun hafa sagt við Heimildina í fyrra: ,,að stuðningurinn væri ekki að rata til þeirra hópa sem þurfi helst á honum að halda"

Á síðasta ári var ákveðið að framlengja úrræðið en fyrir þrýsting frá verkalýðshreyfingunni hefur að sögn Sigurðar: 

,,„Við höfum alveg haft hug á því að hætta fyrr en í kjaraviðræðum þá hefur það oft komið fram frá ákveðnum aðilum innan verkalýðshreyfingarinnar að það sé nauðsynlegt að hafa þetta inni til þess að koma með ávinning til þeirra hópa.“"

Fram kemur að hóparnir sem vísað er til séu: ,,til að mynda [verið] BHM og að hann minni að VR hafi líka lagt fram slíka kröfu. „Það er erfitt að hætta þessu.“

Það getur verið erfitt að hætta því sem menn eru búnir að venja sig á en reynslan hefur einnig leitt í ljós, að það er viljinn sem skiptir máli og ræður úrslitum um hvernig til tekst!


Sakleysið, traustið og spurnin

Þegar þessi pistill var í smíðum heyrðist viðtal við formann Framsóknarflokksins, í 11 fréttum Rúv, og hann var harla kátur með ,,breytinguna“.

Það hafa verið uppi spurningar um sakleysi í mannheimum, nú sem svo oft áður og síðustu dagana er sem ekki sé allt sem sýnist varðandi lagabreytingu um afurðastöðvar sem gerð var í flaustri á Alþingi fyrir skömmu síðan.

Skjámynd 2024-07-09 083821Á myndunum sjáum við dæmigert sakleysi og ljóst er, að kindin stolta með lambið fallega, er sem betur fer ekki að hugsa mikið til haustsins; hún er ánægð með sitt og glöð ef henni tekst að halda því þann tíma sem það þarfnast hennar.

Þegar haustar verður hún ekki spurð eins né neins og líklegt er, að lambið verði tekið frá henni og komið á disk einhverra í framhaldinu, því ,það er köttur í bóli bjarnar’ og þó sakleysislegur sé, þá þarf hann mat á sina skál og gott er, að hún sé undirstöðugóð og gefi fyllingu svo hægt sé að leggjast á meltuna til að mala og það sama gildir um eigendur kisu litlu.

Það er það sem gert hefur verið að mala í merkingunni að mæla og rita um dæmalaus lög sem samþykkt voru á þingi eins og hér var nefnt í upphafi.

Í ljós hefur komið að þrýstingurinn fyrir að lögin væru sett, kom að utan en ekki að innan, þ.e. þau sem fyrir þeim börðust voru að líkindum handbendi manna út í bæ.

Það er ekki að undra þó spurn sé í svip kisa, því nú áttar hann sig á að þetta er ekki fyrir hann gert og var ekki gert til að það sem í skálina kemur yrði örlítið meira og pínulítið betra.

Nei, þetta var gert til að matur húsbænda hans yrði dálítið þyngri fyrir buddu eigendanna, sem gæti leitt til þess að hann fengi lítið eitt minna af góðgætinu og yrði þess í stað, að sætta sig við meira af einhverskonar kögglum til að húsbændurnir fengju síður sting í budduna.

Einn þeirra sem barðist fyrir samþykkt málsins á þingi reynist vera eigandi að hlut í fyrirtækinu sem nýtur góðs(?) af gjörningnum.

Þingmenn eru kjörnir til að gæta hagsmuna lands og þjóðar og litið er svo á að þeirra hagsmunir fari saman við þá hagsmuni.

Því er það leitt svo ekki sé meira sagt, þegar þingmenn fara út fyrir þau mörk.

Þingmaðurinn afsakar sig með því að hann eigi aðeins oggolítilla hagsmuna að gæta og því sé þetta nú allt í besta lagi.

Og þannig er það og þannig verður það, að spillingarþefur fjarar út með tímanum og gleymist, því við taka ný mál sem hugur landans kemur síðan til með að snúast um.

Það er líka dálítil bið eftir kosningum og ekki vonlaust, að málið verði gleymt þegar að þeim kemur.

Hvort úrslit þeirra verða ráðin í Borgarnesi, vitum við ekki en við bíðum og sjáum hvað setur.

Hvort við fáum annað skip og annað föruneyti er hreint ekki líklegt, því við erum svo fljót að gleyma og flokksböndin, maður minn!

Þau eru traust!


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband